Titillinn á ljóðabók Sigurbjargar Þrastardóttur, Brúður, er skemmtilega tvíræður í málfræðilegum einfaldleika sínum. Brúður er eintöluorðið yfir konu sem er að fara að gifta sig en í fleirtölu er orðið brúður notað um leikföng í mannslíki, einnig nefnd dúkkur. Fleirtöluorðið brúður vísar ennfremur í leikhúsfyrirbærið leikbrúður eða strengjabrúður og brúðuleikhús. Allt þetta og meira kemur svo fram í bókinni sjálfri, en þar leikur skáldkonan sér með brúðir eins og þær væru brúður eða strengjabrúður, setur í raun upp einskonar brúðuleikhús með brúðum sínum.
...
Það er forvitnilegt að bera saman káputexta bókar Ragnars Jónassonar, Snjóblinda, og titil bókar Árna, Morgunengill. Í fyrrnefndu bókinni er talað um að kona líkist snjóengli þar sem hún liggur slösuð í snjónum á Siglufirði. Árna fórnarlamb er búsett í næsta bæ, Akureyri, og þar hlustar morðinginn á lagið morgunengil. Hvort þær eiga annað sameiginlegt ætla ég að láta lesendum eftir að komast að.
...
Hafið hefur löngum verið uppspretta skáldskaparmála ýmiskonar, enda afskaplega skáldlegt fyrirbæri, nátengt dulvitundinni og móðurinni. Hafið hefur þó ekkert endilega verið nærtækt íslenskum skáldum, þrátt fyrir að umlykja landið linnulaust. Það eru helst skáld sem tilheyra (eiginlega ekki) nýrómantíkinni sem fjölluðu um hafið, eins og hinn dramatíski Einar Benediktsson og þær systur Herdís og Ólína Andrésdætur. ...
Rúnar er nýfluttur með pabba sínum í lítið þorp úti á landi, langt frá vinum sínum og fjölskyldu í höfuðborginni. Honum líst ekki of vel á þann ráðahag en þegar að hann kynnist systkinunum Möggu og Lilla verður lífið á nýja staðnum strax mun bærilegra. Enn betra verður það síðan þegar við bætast heimssögulegar uppgötvanir þar sem hægt er að horfa á hluti úr fortíðinni fyrir framan sig og meðal þess sem birtist er stelpa frá löngu liðinni tíð sem virðist vilja segja krökkunum eitthvað mjög áhugavert.
...
Stundum er sagt að raunveruleikinn sé ýktari en allur skáldskapur. Þessu má reyndar líka snúa við því að stundum er mesta sannleikann að finna í skáldskap. Í sumum tilvikum er þar skírskotað til sannleikans í víðara samhengi og þá óháð tíma og rúmi. Hver kannast til dæmis ekki við að dæmi úr heimsbókmenntum horfinna alda séu dregin fram til að varpa ljósi á viðburði í samtímanum til að sýna fram á að mannlegt eðli sé alltaf eins og að sagan sé stöðug hringrás?
...
Þær voru ófáar gleðistundirnar sem ég átti með Mola flugustrák. Áhugi minn á skordýrum var alltaf mikill og ég yfirfærði ævintýri Mola og félaga hiklaust yfir á þann smádýraheim sem var í kringum mig, sá flugustráka allsstaðar og óttaðist um afdrif þeirra. Eitthvað hefur þetta nú samt skolast til því áhuginn á kóngulóm var ekki minni en á flugum og mér tókst greinilega aldrei að tengja illmennið Köngul við þessa margfættu og flínku vini.
...
Hlustaðu á ljósið er aðeins fjórða ljóðabók Njarðar P. Njarðvík, en hann er afkastamikill rithöfundur og þýðandi sem kunnugt er. Þær fyrri eru Lestin til Lundar (1973), Leitin að fjarskanum (1990) og Aftur til steinsins (2005). ...
Titillinn á átjándualdar sögu Ófeigs Sigurðssonar er ansi viðamikill: Skáldsaga um Jón & hans rituðu bréf til barnshafandi konu sinnar þá hann dvaldi í helli yfir vetur & undirbjó komu hennar & nýrra tíma. Þetta eru alls 25 orð og að auki boðar titillinn nýja tíma. Á sama hátt er umgjörð sögunnar mikilfengleg, en sagan gerist á suðurlandi um miðja átjándu öld, nánar tiltekið árið 1755, en einmitt þá er Kötlugos í fullum gangi með tilheyrandi hamförum, jarðskjálftum, öskufalli og æsingi yfirleitt. Söguhetjan Jón er enginn annar en eldklerkurinn Jón Steingrímsson, sem hér er ungur að árum.
...
Í viðtölum vegna glæpasögu sinnar frá í fyrra, Horfðu á mig, talaði Yrsa Sigurðardóttir um að hana langaði til að skrifa bók sem væri meira í ætt við hrollvekju en glæpasögu. Og nú hefur hún uppfyllt þau loforð því nýja bókin, Ég man þig, er meiri draugasaga en glæpasaga þó vissulega komi glæpir og glæpsamlegt athæfi við sögu.
...
Höfundurinn, Ragnar Jónasson þekkir greinilega til á Siglufirði og ég stóð sjálfa mig að því að rifja upp hvar einstaka götur eru í bænum, sá fyrir mér Ráðhústorgið og bíóið eins og það var fyrir rúmum 30 árum þegar ég var að alast þar upp. ...