Allt fínt ... en þú?

Jónína Leósdóttir

Mál og menning, 2010.

Skvísubók fyrir fullþroska dömur

Ég hikaði aðeins þegar ég fékk í hendurnar nýjustu bók Jónínu Leósdóttur, Allt fínt ... en þú?, ekki af því ég efaðist um hæfileika Jónínu til að skrifa heldur vegna konunnar sem hékk á bókarkápunni með eitthvað sem líktist skelfingarsvip á andlitnu.

Í bókinni segir frá Nínu, heimavinnandi þýðanda sjónvarpsefnis, sem tekur inn á sig öll vandamál sem uppkoma í fjölskyldu- og vinahópnum en uppsker lítið þakklæti fyrir. Nína er tæplega fertug, gift prestinum Georg og saman eiga þau dæturnar Önnu og Agnesi Ýr. Anna er fimm ára og með downs heilkenni en eldri systirin hefur nýlokið stúdentsprófi og veit ekkert hvað hún vill í framhaldi af því. Yngri systir Nínu er leikkonan og dramadrottningin Sunna, sem er vön því að Nína taki að sér að bjarga málunum þegar eitthvað kemur upp á og sjá til þess að líf hennar gangi snurðulaust fyrir sig.

Sagan spannar sex mánuði. Hún hefst í júníbyrjun, móðir Nínu er nýlátin og sjötugur faðir hennar tilkynnir henni að hann hafi eignast tuttugu árum yngri vinkonu og það vekur ekki mikla lukku meðal dætra hans.

Nína segir söguna  í fyrstu persónu, hún er fyndin og sjálfhæðin og það er erfitt annað en að láta sér líka við hana, kannski ekki síst vegna þess að persóna hennar er breysk og henni verður oft á í messunni.  Í lok sögunnar er farið að líða að jólum og ýmislegt hefur gerst sem hefur fengið hana til að líta í eigin barm og endurskoða afstöðu sína til fjölskyldunnar , hjónabandsins – og lífsins. 
Efnið er kunnuglegt og ég hef lesið ótal bækur þar sem þemað er svipað;  miðaldra kona lendir í atburðarás sem fær hana til að hugsa líf sitt upp á nýtt, skemmtilega fram sett með slatta af húmor og íróníu... en þegar ég fór að hugsa málið þá er engin bókanna á íslensku, sem er ótrúlegt miðað við hvað þessi tegund bókmennta sést oft á erlendum metsölulistum. Sem stendur man ég aðeins eftir tveimur bókum sem hafa verið skrifaðar á íslensku í þessum anda, Dís eftir þær Birnu Önnu Björnsdóttur, Oddnýju Sturludóttur og Silju Hauksdóttur og svo Makalaus eftir Tobbu Marínós sem út kom í vor. Þær eiga hins vegar að höfða til yngri lesendahóps en þessi bók Jónínu.

Ég hafði gaman af lestri bókarinnar þó að sjálfsögðu sé hún ekki fullkomin, frekar en aðalpersónan. Systirin Sunna er t.d. óþarflega klisjukennd, rík , fordekruð og með þágufallssýki og það er erfitt að ímynda sér hvað bindur Nínu við eiginmanninn, mannleysuna Georg. Sem skemmtilestur um jólin, í fríinu eða bara til að slaka á og gleyma eigin vandamálum, er alveg óhætt að mæla með Allt fínt.. en þú?, takið bara kápuna af, fáið ykkur bókamerki og njótið lestursins.

Ingibjörg Rögnvaldsdóttir, desember 2010.


Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook

Brúður eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur
Brúður | 01.12.2010
Titillinn á ljóðabók Sigurbjargar Þrastardóttur, Brúður, er skemmtilega tvíræður í málfræðilegum einfaldleika sínum. Brúður er eintöluorðið yfir konu sem er að fara að gifta sig en í fleirtölu er orðið brúður notað um leikföng í mannslíki, einnig nefnd dúkkur. Fleirtöluorðið brúður vísar ennfremur í leikhúsfyrirbærið leikbrúður eða strengjabrúður og brúðuleikhús. Allt þetta og meira kemur svo fram í bókinni sjálfri, en þar leikur skáldkonan sér með brúðir eins og þær væru brúður eða strengjabrúður, setur í raun upp einskonar brúðuleikhús með brúðum sínum. ...
Morgunengill
Morgunengill | 30.11.2010
Það er forvitnilegt að bera saman káputexta bókar Ragnars Jónassonar, Snjóblinda, og titil bókar Árna, Morgunengill. Í fyrrnefndu bókinni er talað um að kona líkist snjóengli þar sem hún liggur slösuð í snjónum á Siglufirði. Árna fórnarlamb er búsett í næsta bæ, Akureyri, og þar hlustar morðinginn á lagið morgunengil. Hvort þær eiga annað sameiginlegt ætla ég að láta lesendum eftir að komast að. ...
Sjóarinn með morgunhestana undir kjólnum
Hafið hefur löngum verið uppspretta skáldskaparmála ýmiskonar, enda afskaplega skáldlegt fyrirbæri, nátengt dulvitundinni og móðurinni. Hafið hefur þó ekkert endilega verið nærtækt íslenskum skáldum, þrátt fyrir að umlykja landið linnulaust. Það eru helst skáld sem tilheyra (eiginlega ekki) nýrómantíkinni sem fjölluðu um hafið, eins og hinn dramatíski Einar Benediktsson og þær systur Herdís og Ólína Andrésdætur. ...
Forngripasafnið
Forngripasafnið | 29.11.2010
Rúnar er nýfluttur með pabba sínum í lítið þorp úti á landi, langt frá vinum sínum og fjölskyldu í höfuðborginni. Honum líst ekki of vel á þann ráðahag en þegar að hann kynnist systkinunum Möggu og Lilla verður lífið á nýja staðnum strax mun bærilegra. Enn betra verður það síðan þegar við bætast heimssögulegar uppgötvanir þar sem hægt er að horfa á hluti úr fortíðinni fyrir framan sig og meðal þess sem birtist er stelpa frá löngu liðinni tíð sem virðist vilja segja krökkunum eitthvað mjög áhugavert. ...
Önnur líf eftir Ævar Örn Jósepsson
Önnur líf | 29.11.2010
Stundum er sagt að raunveruleikinn sé ýktari en allur skáldskapur. Þessu má reyndar líka snúa við því að stundum er mesta sannleikann að finna í skáldskap. Í sumum tilvikum er þar skírskotað til sannleikans í víðara samhengi og þá óháð tíma og rúmi. Hver kannast til dæmis ekki við að dæmi úr heimsbókmenntum horfinna alda séu dregin fram til að varpa ljósi á viðburði í samtímanum til að sýna fram á að mannlegt eðli sé alltaf eins og að sagan sé stöðug hringrás? ...
Moli litli flugustrákur
Þær voru ófáar gleðistundirnar sem ég átti með Mola flugustrák. Áhugi minn á skordýrum var alltaf mikill og ég yfirfærði ævintýri Mola og félaga hiklaust yfir á þann smádýraheim sem var í kringum mig, sá flugustráka allsstaðar og óttaðist um afdrif þeirra. Eitthvað hefur þetta nú samt skolast til því áhuginn á kóngulóm var ekki minni en á flugum og mér tókst greinilega aldrei að tengja illmennið Köngul við þessa margfættu og flínku vini. ...
Hver ert þú?
Hlustaðu á ljósið er aðeins fjórða ljóðabók Njarðar P. Njarðvík, en hann er afkastamikill rithöfundur og þýðandi sem kunnugt er. Þær fyrri eru Lestin til Lundar (1973), Leitin að fjarskanum (1990) og Aftur til steinsins (2005). ...
Skáldsaga um Jón
Titillinn á átjándualdar sögu Ófeigs Sigurðssonar er ansi viðamikill: Skáldsaga um Jón & hans rituðu bréf til barnshafandi konu sinnar þá hann dvaldi í helli yfir vetur & undirbjó komu hennar & nýrra tíma. Þetta eru alls 25 orð og að auki boðar titillinn nýja tíma. Á sama hátt er umgjörð sögunnar mikilfengleg, en sagan gerist á suðurlandi um miðja átjándu öld, nánar tiltekið árið 1755, en einmitt þá er Kötlugos í fullum gangi með tilheyrandi hamförum, jarðskjálftum, öskufalli og æsingi yfirleitt. Söguhetjan Jón er enginn annar en eldklerkurinn Jón Steingrímsson, sem hér er ungur að árum. ...
Ég man þig
Ég man þig | 24.11.2010
Í viðtölum vegna glæpasögu sinnar frá í fyrra, Horfðu á mig, talaði Yrsa Sigurðardóttir um að hana langaði til að skrifa bók sem væri meira í ætt við hrollvekju en glæpasögu. Og nú hefur hún uppfyllt þau loforð því nýja bókin, Ég man þig, er meiri draugasaga en glæpasaga þó vissulega komi glæpir og glæpsamlegt athæfi við sögu. ...
Snjóblinda
Snjóblinda | 23.11.2010
Höfundurinn, Ragnar Jónasson þekkir greinilega til á Siglufirði og ég stóð sjálfa mig að því að rifja upp hvar einstaka götur eru í bænum, sá fyrir mér Ráðhústorgið og bíóið eins og það var fyrir rúmum 30 árum þegar ég var að alast þar upp. ...


Booksearch

Author:
Book:


Skipta um leturstærð


Tungumál