Fjórar myndskreyttar barnabækur

Björk Bjarkadóttir: Grallarar í gleðileit
Mál og menning, 2010

Kristín R. Thorlacius og Erla Sigurðardóttir: Var það bara svona?
Uppheimar, 2010

Guðrún Helgadóttir og Anna Cynthia Leplar: Lítil saga um latan unga
Mál og menning, 2010

Áslaug Jónsdóttir, Kalle Güettle of Rakel Hemsdal: Skrímsli á toppnum
Mál og menning, 2010.

Fjölbreyttar barnabækur með myndum

Höfundar barnabóka með litskrúðugum myndum fara um víðan völl  þetta árið og það endurspeglast ágætlega í þeirri umfjöllun sem hér fer á eftir þar sem söguefnið er allt frá hefðbundinni sveitafrásögn til villtra ævintýra kappsamra skrímsla og kinda sem geyma tígrisdýr í ullinni sinni.

Grallarar í gleðileitBjörk Bjarkadóttir segir frá bræðralagi stráksins Tolla og kindarinnar Todda í bókinni Grallarar í gleðileit. Þegar mamma þeirra þreytist á fíflalátunum í þeim ákveða þeir að bregða sér niður í bæ og finna eitthvað sem glatt getur mömmu. Ullarfeldurinn á Todda hefur þann eiginleika að geta tekið við endalausu af dýrmætum varningi og félagarnir nýta sér það óspart í bæjarferðinni þegar að þeir stinga í ullina kökum, koddum, blómum og ýmsu öðru sem glatt gæti mömmu.

Rúsínan í pylsuendanum er svo heilt tígrísdýr sem Toddi á ekki heldur í neinum erfiðleikum með að bera í ull sinni, jafnvel þó að honum lítist kannski ekkert allt of vel á þá grimmu skepnu. Allt stefnir þó í uppnám þegar að Toddi hristir hlutina úr feldinum og ekkert stendur eftir nema eitt blóm.

Björk er bæði höfundur mynda og texta. Myndirnar eru líflegar og skemmtilegar og líklegar til að höfða til ungra lesenda sinna.  Sagan höfðar áreiðanlega vel til krakka með ríkt ímyndunarafl þar sem að falin tígrísdýr í ullarfeldi kindar er jafn eðlilegur hlutur og blár himinn.

Var það bara svona?Var það bara svona?, saga Kristínar R. Thorlacius með myndum Erlu Sigurðardóttur, eru öllu rótgrónari. Þar er rammasaga mest áberandi, lögð í munn ömmu sem segir barnabarni sínu sögu. Sagan sem amman segir er um stúlku á sveitaheimili sem leiðist en tekur gleði sína á ný þegar að hún fær að fara með pabba sínum að gefa hrútunum hafrana.

Yfirbragð sögunnar er nokkuð fornt og það sama á við um frásagnarmáta og orðaval. Auðvitað er mikilvægt að börn venjist því að lesa fjölbreyttan texta og auka orðaforða sinn en ég er dálítið smeykur um að hinn forni stíll valdi því að sagan glati inntaki sínu hjá ungum lesendum sínum, sérstaklega vegna þess frásögnin hverfist um margbreytileika tungumálsins. Þá er uppbygging sögunnar nokkuð losaraleg og þá sérlega sögulokin.

Myndir Erlu Sigurðardóttur eru vel unnar en þær mættu vera líflegri og kraftmeiri.

Lítil saga um latan ungaGuðrún Helgadóttir er sjálfri sér lík í sinni nýjustu sögu. Sem betur fer. Guðrún hefur alltaf sýnt lesendum sínum þá virðingu að hlífa þeim ekki við stórum og flóknum viðfangsefnum lífsins, þá ekki síst þeim sem aðrir barnabókahöfundar koma sér undan að fjalla um af tepruskap eða misskilinni góðvild.

Í Lítilli sögu um latan unga segir frá lötum unga sem nennir ekki að fylgja í fótspor jafnaldra sinna og fljúga úr hreiðri móður sinnar og hefja sitt eigið líf. Mamman þarf því að þræla sér út til að afla matar sem hæfir tiktúrum hins matvanda afkvæmis síns. Jafnframt þarf hún að lifa í óttanum við það hvað muni gerast þegar að hreiðrið sligast undan þunga stálpaðs ungans og hann hrapar ófleygur úr trénu.

Þetta er hressileg, fyndin og hárbeitt saga. Maður þarf ekki að vera mjög góður í því að lesa í táknsögur til að sjá hvernig eru skotspónar þessarar sögu Guðrúnar.

Ég sting alla vega upp á þessari bók í jólapakkann, ekki bara til barna heldur líka til dofinna ungmenna á „hótel mömmu“ sem kannski hafa varðveitt barnið í sér aðeins meira en góðu hófi gegnir.

Myndir Önnu Cynthiu Leplar passa frásögninni vel. Sérstaklega er forsíðumyndin kostuleg, af fýldum unglingnum sem hangir letilega í hreiðrinu með annan fótinn út í loftið.


Skrímsli á toppnumMenn hafa misjafnar skoðanir á norrænu samstarfi. Enginn gæti þó nokkurn tíma haft nokkuð á móti norrænu samstarfi ef það lukkaðist ávallt jafn vel og skrímslabókasamstarf þeirra Áslaugar Jónsdóttur frá Íslandi, hins sænska Kalle Güettler og Rakelar Hemsdal frá Færeyjum.

Bókaflokkur þeirra um litla skrímslið og stóra skrímslið er ekkert minna en stórkostlegur. Sögurnar taka á öllum þeim ólgandi tilfinningum sem bærast með okkur öllum, bæði börnum og fullorðnum,  og okkur gengur misjafnlega vel að hafa stjórn á. Allar snúast þær um þær flækjur sem þetta getur valdið og ekki síst hvað það getur verið erfitt að gangast við tilfinningum sínum og vinna með þær. Það kemur einhvern veginn af sjálfu sér að bækurnar verði uppspretta innihaldsríkrar umræðu milli barna og foreldra þeirra. Í því hef ég alla vega lent sjálfur og notið þess mjög.

Sögurnar hitta mann alltaf í hjartastað, þær eru vel sagðar og persónurnar eru ákaflega heillandi og auðvelt að samsama sig með þeim.

Allir höfundarnir þrír eru skráðir fyrir sögunum en Áslaug er ein höfundur mynda. Áslaug er, að mínu mati, langbesti myndhöfundur barnabóka á Íslandi um þessar mundir og raunar stendur hún líka í allra fremstu röð sem textahöfundur barnabóka. Einkenni hennar verka er mjög sterkt samspil á milli textahönnunar og mynda, raunar má segja að textahönnunin leiki lykilhlutverk í hennar verkum. Auk Skrímslabókanna má þar til dæmis nefnda hina fræbæru bók hennar, Ég vil fisk!, þar sem stigmögnunin eykst í texta og myndum frá síðu til síðu.

Nýjasta bókin, Skrímsli á toppnum, er sú sjötta í röðinni. Þar er stærilæti í brennidepli og segja má að dramb sé þar bókstaflega falli næst. Um hana á allt það sama og um flokkinn í heild og þess vegna fær Skrímsli á toppnum fullt hús, eins og allar hinar bækurnar í flokknum fá líka. Lifi norrænt skrímslasamstarf sem lengst!

Sigurður Ólafsson, desember 2010.


Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook

Lítil saga um latan unga
Sigurður Ólafsson skrifar um bækurnar Grallarar í gleðileit eftir Björk Bjarkadóttur, Var það bara svona eftir Kristínu Thorlacius, Lítil saga um latan unga eftir Guðrúnu Helgadóttur og Skrímsli á toppnum eftir Áslaugu Jónsdóttur, Kalle Güettler og Rakel Hemsdal. ...
Þrumulostinn
Þrumulostinn | 08.12.2010
Það getur haft skelfilegar afleiðingar að vera á röngum stað á röngum tíma. Því kynnist loftslagsfræðingurinn Adam Kindred svo sannarlega þegar að hann lendir fyrir tilviljun á vettvangi morðs án þess að eiga þar nokkra aðkomu að verki. Í kjölfarið beinast spjót yfirvalda sem og undirheima Lundúna að því að ná í skottið á honum. Hann, sem einmitt var í þann mund að leggja drög að blómlegri framtíð sem virtur háskólamaður neyðist nú til þess að má út öll spor um tilveru sína og láta sig hverfa. Hann felur sig hér og þar í dimmum skotum heimsborgarinnar og tekur upp ný auðkenni og nýjar venjur. ...
Furðustrandir
Furðustrandir | 08.12.2010
Það fylgir því alltaf töluverð eftirvænting að fá í hendur nýja bók eftir Arnald Indriðason og ekki dregur það úr eftirvæntingunni að nú eiga lesendur von á að fá að vita hvað kom fyrir Erlend þegar hann hvarf. Í þessari nýjustu bók Arnaldar segir frá ferðum Erlendar Sveinssonar austur á æskuslóðirnar. Hann hefst við í hálfhrundu eyðibýli foreldra sinna og gengur á fjallið Harðskafa, enn heltekin af hvarfi bróður síns mörgum áratugum fyrr. Hvarf bróðurins er ekki eina mannshvarfið sem vekur áhuga Erlendar, ...
Hringnum lokað
Hringnum lokað | 07.12.2010
Skáldsaga breska höfundarins Michael Ridpath, Hringnum lokað, er lýst sem glæpasögu, alþjóðlegri metsölubók sem gerist á Íslandi. Bókin, sem á frummálinu nefnist Where The Shadows Lie, er sú fyrsta í nýrri glæpaseríu höfundar, undir yfirskriftinni ‚eldur og ís‘, en þar er hinn íslenski rannsóknarlögreglumaður Magnús í aðalhlutverki. Sagan kom út fyrr á þessu ári en höfundur er þegar tilbúinn með næstu bók, sem nefnist 66 North og kemur út á næsta ári. ...
Tregðulögmálið
Tregðulögmálið | 07.12.2010
Tregðulögmálið eftir Yrsu Þöll Gylfadóttur gerist á haustmánuðum. Söguhetjan og sögumaðurinn Úlfhildur er á frumstigi þess að skrifa B.A.-ritgerð í bókmenntafræðum og stefnir framan af á útskrift um áramót. Hún er í vonlausu sambandi með fyrrum aktívista sem er yfir allt og alla hafinn, foreldrar hennar eru ferkantaðir og rífast við sjónvarpið, og henni gengur illa að læra. Sagan gerist að mestum hluta í höfðinu á Úlfhildi, hún hugsar eitt og annað um hitt og þetta og kemst stundum vel að orði. Það er fátt annað að segja um söguþráðinn, sagan byggist upp á samtölum og pælingum frekar en einhverskonar fléttu, enda stendur sagan og fellur með rödd Úlfhildar og frásagnarmáta. ...
Handritið að kvikmynd
Einhverntíma las ég dáldið skemmtilega fræðilega útlistun á því hvernig óreiða er fyrirbæri sem vindur ævinlega uppá sig. Óreiða er ástand sem stigmagnast ef ekki er gripið inní og málin tekin föstum tökum, á endanum tekur hún yfir og gleypir heiminn. Þetta er reyndar kenning um fantasíubókmenntir sem eru svona almennt séð nokkuð fjarlægar bókum Braga Ólafssonar, en samt var þessi lýsing það fyrsta sem datt ofaní hausinn á mér þegar ég hafði, eftir mikið más og blás, lokið lestri á Handritinu að kvikmynd Arnar Featherby og Jóns Magnússonar um uppnámið á veitingahúsinu eftir Jenný Alexson eftir Braga. ...
Hversdagsgæfa
Hversdagsgæfa | 06.12.2010
Stundum er ég fengin til að fjalla um hlutverk gagnrýnandans. Eitt af því sem ég legg mikla áherslu á er að gagnrýnandinn á að þjóna lesendum bókarinnar, mun frekar en höfundi hennar (hvað þá útgefanda). Í því hlutverki felst að gefa lesanda upplýsingar um bókina, höfund hennar og inntak og þar á meðal að segja til um hverskonar bók er að ræða. Allt er þetta afskaplega göfugt en þó ekkert endilega svo auðframkvæmanlegt, því svo vill til að bækur eru margskonar og hafa tilhneygingu til að skríða undan viðteknum flokkunum. Dæmi um þetta er hvernig mörk skáldsögu og æviskrifa hafa tæst upp á undanförnum árum (jafnvel áratugum), þótt vissulega séu enn gefnar út hefðbundnar ævisögur og skáldsögur. ...
Allt fínt ... en þú?
Ég hikaði aðeins þegar ég fékk í hendurnar nýjustu bók Jónínu Leósdóttur, Allt fínt ... en þú?, ekki af því ég efaðist um hæfileika Jónínu til að skrifa heldur vegna konunnar sem hékk á bókarkápunni með eitthvað sem líktist skelfingarsvip á andlitnu. ...
Aþena: Hvað er málið með Haítí?
Ekki eru nema nokkrir áratugir síðan að hugtakið „unglingur“ þótti æði nýstárlegt. Fram að því voru skilin skörp á milli æsku og fullorðinsára, börn höfðu einfaldlega komist „í fullorðinna manna tölu“ strax upp úr fermingaraldri. Síðan hefur skilgreindu þroskaskeiðunum fjölgað og og bæði barns- og unglingsskeiðinu er deilt niður í fleiri hluta. ...
Þór: Leyndarmál guðanna
Það er glaður og kraftmikill strákur sem flytur í Valhöll og er útnefndur Verndari frjálsra manna í annarri bók Friðriks Erlingssonar um þá félaga Þór Óðinsson og Mjölni, töfrahamarinn ógurlega. Saman þjóta þeir um himinhvolfið í vagni Þórs og slást við jötna á milli þess sem þeir leggja fólkinu í Miðgarði lið. Það líður heldur ekki á löngu þar til Þór verður hvers manns hugljúfi enda er hann snöggur að bregðast við hverju kalli og hverri bæn. ...


Booksearch

Author:
Book:


Skipta um leturstærð


Tungumál