Morð fyrir luktum dyrum

Hermann Stefánsson

Kind, 2010.

Smáorð um smárit

UmslagMorð fyrir luktum dyrum barst mér í umslagi um daginn. Umslagið er partur af „ritröð um menningu og mannlíf með ritgerðum, greinum, sögum, ljóðum og myndverkum”, segir aftan á umslaginu. Fyrsta verkið var ljóðaumslagið Sjöund, með ljóðum eftir Gunnar Hersvein, hannað af Sóleyju Stefánsdóttur, sem hafði veg og vanda að þessari einstöku og fersku útgáfu á bókarformið. Umslagið er nefnilega ekki aðeins umbúðir heldur hluti af ritverkinu sem heftað er inn í það. Allt er þetta ákaflega skemmtilegt og sniðugt og býður höfundum upp á ýmsa leiki í máli og myndum, auk þess að gleðja lesandann, því það er svo spennandi að sjá hvað kemur upp úr umslaginu hverju sinni.

Hermann Stefánsson notar umslagið til að fanga morð fyrir luktum dyrum og sendir lesendum dásamlegan smákrimma. Þegar rannsóknarlögreglufulltrúinn snjalli, Aðalsteinn Lyngdal, kemur að líki lögfræðingsins Loga Sveinssonar er hann ekki lengi að átta sig á hvernig á því getur staðið að maðurinn hafi verið myrtur innan luktra dyra íbúðar sinnar. Aðstoðarfulltrúinn Reynir er ekki eins fljótur að fatta, hann rifjar upp sögu eftir Edgar Allan Poe um morðin á Rue Morgue, en þar er einnig ómögulegt að sjá hvernig morðinginn gat hafa komist inn í læsta íbúðina, hvað þá út úr henni aftur. Morðinginn reynist vera api sem getur klifrað út um glugga sem enginn maður hefði komist inn eða út um. Þegar Reynir kemst að því að nágranni Loga er að flytja inn apa til að hafa í ný-endur-opnaðri Eden grunar hann strax að nágrannaerjur gætu verið lausnin á vandanum, en hinn myrti virðist hafa verið afskaplega erfiður í umgengni og sérlunda.

Hermann skemmtir sér konunglega við að leika sér með glæpasagnaformið, kreista klisjur og veifa rauðum síldum og tekst afskaplega vel upp. Textann hefði þó að ósekju mátt lesa einu sinni yfir enn og fixa smá hökt og villur, en allt slíkt gleymist fljótt þegar flækjustig sögunnar eykst og svo virðist sem morðinginn hafi látið til skarar skríða á ný!

Úlfhildur Dagsdóttir, desember 2010.


Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook

Kvöldverðurinn eftir Herman Koch
Kvöldverðurinn | 20.10.2010
Tvö gerólík verk komu upp í huga mér við lesturinn á skáldsögu Herman Koch, Kvöldverðurinn. Annarsvegar smásaga Svövu Jakobsdóttur, “Veisla undir grjótvegg” og hinsvegar kvikmynd austurríska leikstjórans Michael Haneke, Benny’s Video. ...
Ljóðarými
Hún er dálítið sérstök í útliti bókin sem inniheldur ljóð frá tveimur heimshornum, austurlöndum fjær og norðurlöndum. ...
Leyndarmál annarra
Leyndarmál annarra | 05.10.2010
Ég var í afmæli um helgina og gestgjafinn kvaðst hafa heyrt um nýja ljóðabók sem hefði unnið til verðlauna: „Mig langar til að lesa hana.” Ég lofaði auðvitað að lána bókina og þarf nú að skrifa þennan ritdóm í hasti, til að svekkja ekki afmælisbarnið. ...
Nemesis
Það var óneitanlega svolítið sérstakt að eyða páskunum meðal norrænna glæpa, sem flestir tengdust fortíðinni með einum eða öðrum hætti, misfjarlægri þó. Þannig ferðaðist ég frá vesturheimi til smábæjar í Svíþjóð, þaðan til lítillar sænskrar eyjar og endaði loks í Osló. ...


Booksearch

Author:
Book:


Skipta um leturstærð


Tungumál