Hið fullkomna landslag

Ragna Sigurðardóttir.

Mál og menning, 2009

Hið fullkomna landslag er fjórða skáldsaga Rögnu Sigurðardóttur en sú fyrsta, Borg, kom út 1993, Skot kom 1997 og Strengir árið 2000, en auk þeirra hefur Ragna skrifað ljóð og smásögur.

Í Hinu fullkomna landslagi segir frá listfræðingnum Hönnu sem kemur heim til Íslands til að taka við deildarstjórastöðu á listasafni borgarinnar eftir margra ára búsetu í Amsterdam.  Á safninu kynnist hún forverðinum Steini, sem trúir henni fyrir því að hann telji verk sem nýlega var gefið safninu falsað. Gefandinn er vinkona safnstjórans og málverkið er talið eftir eina af fremstu listakonum þjóðarinnar.  Það er því ekki auðsótt mál að fá að hreinsa verkið og sjá hvað leynist á bak við myndina.  Í sögunni vísar höfundur til fölsunarmála sem skóku íslenskt lista- og menningarlíf fyrir  ekki svo mörgum árum síðan. Steinn rifjar það mál upp fyrir Hönnu, og þar með lesendum, en hún var ekki á landinu þegar það komst í hámæli. En það eru ekki einungis málverkin sem geta veri fölsuð, svikin leynast einnig meðal samstarfsmanna og þeirra sem Hanna telur vini sína og kollega. Í Amsterdam skilur hún eftir eiginmann og unglingsdóttur og í hjónabandinu þarf hún einnig að takast á við svik og óheiðarleika.  Í sögunni er tekist á við þessa þætti í samskiptum fólks, ásamt vináttu, ást og trausti. Það á bæði við um mannfólkið og myndlistina að yfirborðið segir ekki allan sannleikann um innihaldið og það getur reynst dýrkeypt að dæma eftir útlitinu einu saman.  Hið fullkomna landslag er kannski ekki fullkomið þegar betur er að gáð. Inn í söguna blandast einnig saga unglingspiltsins Kára, veggjakrotara með mikla listræna hæfileika, sem Hönnu langar til að hann læri að virkja á réttan hátt.   

Ragna dregur upp nákvæmar myndir af umhverfi og persónum og stíllinn nýtur sín einkar vel í lýsingum á málverkum horfinna meistara, en ýmislegt í umhverfinu minnir Hönnu á gömul listaverk sem hún þekkir. Myndrænn textinn gera það einnig að verkum að lesendur sjá persónur og atburði ljóslifandi fyrir sér. Í þessu samhengi verður að minnast á kápuna, frábær hugmynd og myndin af verki Þorra Hringssonar segir allt sem segja þarf um verkið sem málið snýst um.

Hið fullkomna landslag er bók sem vekur til umhugsunar um mál sem ótrúlega fljótt hefur fyrnst yfir. Forvörðurinn Steinn, sem höfundur notar til að fræða Hönnu um atburði sem átt hafa sér stað meðan hún dvaldi erlendis, segir að mikill hluti þeirra verka sem sérfræðingar álitu fölsuð hafi farið aftur í umferð og hangi nú á veggjum landsmanna, ranglega merkt látnum meisturum.  Það þarf hins vegar kjark til að takast á við þetta efni, kjark sem safnstjórinn yfirmaður þeirra hefur ekki, enda stundum auðveldast að láta sem ekkert sé. 

Ragna Sigurðardóttir er myndlistarmenntuð og auk þess að starfa við myndlist og ritstörf skrifar hún myndlistargagnrýni í Morgunblaðið. Hér er hún því á heimaslóðum, að skrifa um efni sem hún gjörþekkir. Við lesendur njótum þess, sagan sat alla vega í mér löngu eftir að lestri lauk og nú bíð ég bara eftir að vinir og kollegar klári hana líka svo ég geti farið að ræða efnið við þau.

Ingibjörg Rögnvaldsdóttir, nóvember 2009


Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook

Himinninn yfir Þingvöllum samanstendur af þremur liðlega hundrað síðna sögum: Rafflesíublóminu, Dögum þagnar og Svarta hlutnum. Í Rafflesíublóminu segir frá Emil, ungum manni sem er nýfluttur á Ljósvallagötuna til þess að ganga frá dánarbúi afa síns og skrifa ritgerð um dauðann í verkum Halldórs Laxness. ...
Hið fullkomna landslag er fjórða skáldsaga Rögnu Sigurðardóttur en sú fyrsta, Borg, kom út 1993, Skot kom 1997 og Strengir árið 2000, en auk þeirra hefur Ragna skrifað ljóð og smásögur. ...
Hetjur | 18.03.2010
Nú þegar Íslendingar eru afar uppteknir af tengslum sínum við Norðmenn er ákaflega viðeigandi að fá bók sem bæði lýsir fjölskyldu sem flytur til ársdvalar þar í landi og ræðir samskipti þjóðanna frá fyrri tímum. Þau samskipti eru auðvitað frá miðöldum og því kannski nokkuð fjarri ætluðum lesendum bókarinnar, ...
Heim til míns hjarta eftir Oddnýju Eir Ævarsdóttur er fallegur gripur. Frágangur er allur til prýði, letrið er smekklegt, pappírinn sömuleiðis og kápa Ragnars Helga Ólafssonar er snjall uppásnúningur á hefð, auk þess að hæfa ritinu vel. Það skyldi ekki vanmetið mikilvægi útlits og gerðar bóka. ...
Harmur englanna | 18.03.2010
Líklega er hollt nú á tímum að Íslendingar séu minntir á hve stutt er síðan þeir voru á pari við svokölluð þróunarlönd hvað lífsgæði og afkomu almennings varðar. Fátt er betur til þess fallið en skáldskapur. Því þótt tölulegar upplýsingar og sagnfræðirit séu ágæt til síns brúks þurfa þessi skilaboð að ná inn að beini, eða öllu heldur inn að hjartarótum. ...
Gæska | 18.03.2010
Gæska, nýjasta skáldsaga Eiríks Arnar Norðdahls, hefði verið kölluð fantasía fyrir hrun. Gæska lýsir nefnilega atburðum og dregur upp myndir af ástandi sem fáir tengja við hæglátt hversdagslífið á Íslandi. Hæglátt hversdagslífið á Íslandi fyrir hrunadansinn allan, vel að merkja. ...
Góði elskhuginn | 18.03.2010
Fáir hafa skrifað jafn vel um ástir og Steinunn Sigurðardóttir. Í bókum sínum hefur hún fjallað af sérstakri kostgæfni um hamingju, ástarsorg, missi og leit í margvíslegum ástarsamböndum – eins og í Tímaþjófnum og Ástin fiskanna – ...
Gásagátan | 17.03.2010
Þeir eru ekki gamlir, bræðurnir og aðalsöguhetjur Gásagátunnar. Sá eldri er tólf ára og yngri bróðir hans er tíu. Þeir heita Kolsveinn og Kálfur og eru komnir til Gása frá Grímsey, bæði til að selja fálka sem þeir hafa fangað og svo ætlar Kolsveinn að hefna föður síns en fylgismenn Guðmundar biskups góða drápu hann. ...
Fölsk nóta | 17.03.2010
Ágætis byrjun hét önnur plata hljómsveitarinnar Sigur Rósar og reyndist þeim sannarlega ágætis byrjun á alþjóðlegum ferli. Ekki skal ég endilega segja um hvort bækur Ragnars Jónassonar muni ná álíka æstum vinsældum, en fyrsta glæpasaga hans, Fölsk nóta, er sannarlega ágætis byrjun ...
Fuglarnir | 17.03.2010
Jólabókaflóðið hefur sína kosti og galla. Einn gallanna er hversu stuttur líftími hverrar nýútkominnar bókar er, í raun aðeins þessar örfáu vikur þegar að hundruð bóka keppast um að komast í gegnum nálaraugað; innpakkaðar undir jólatré landsmanna. ...


Booksearch

Author:
Book:


Skipta um leturstærð


Tungumál