Hyldýpi

Stefán Máni.

Forlagið, 2009

Atburðir við vatn

Tíu ára strákur sekkur í hyldjúpt og kyrrt vatnið og sér þar sýn; stelpu á aldur við hann sjálfan sem réttir honum eitthvað. Tíu árum síðar verður strákurinn fyrir árás og finnst nakinn í skurði. Hann man ekkert eftir aðdraganda árásarinnar en fréttir svo að sama dag hvarf ung stúlka, sem hann er sannfærður um að sé sú sama og hann sá í vatninu. Hann er einnig sannfærður um að hvarf hennar tengist sínu á einhvern hátt og sé glæpsamlegt og reynir að rannsaka málið í trássi við allt og alla, en stúlkan hafði verið nokkuð þekkt fyrir lauslæti og því er hvarf hennar ekki tekið mjög alvarlega. Grunur hans beinist að samstarfsmönnum sínum á fasteignasölunni, frændanum Bergi og bræðrum sem eru vinir hans. Þeir þrír voru einmitt með honum úti á báti á vatninu þegar hann sökk ofaní djúpið. Þeir stunda ekki aðeins vafasöm viðskipti heldur virðast þeir hafa tileinkað sér einskonar heimspeki illskunnar. Inn í málið blandast svo misnotkun í æsku, en allir voru strákarnir misnotaðir af sama manninum, föður Bergs, en hann rekur einmitt fasteignasöluna sem þeir vinna allir hjá.

Þrátt fyrir að þetta sé nokkuð magnað upplegg þá vantar aðeins sterkari tök í þessa nýjustu sögu Stefáns Mána, Hyldýpi. Bókin er vissulega áhugaverð og nokkuð öflug, en þó er eins og höfundur hafi stytt sér leið hér og þar með notkun á staðalímyndum og klisjum, sem ná ekki að öðlast nægilegt líf. Ný tök á kunnuglegum karakterum og klisjum hafa einmitt oft einkennt verk Stefáns Mána, ekki síst eftir að hann tók til við að leika sér með form spennusögunnar. Fram að því hafði hann sent frá sér hæfilega táknsæar skáldsögur um unga týnda menn, en með Svartur á leik (2004) hefur spennusagan verið mest áberandi. Það var þó með Skipinu (2006) sem Stefán Máni sýndi flottustu taktana og er hún ein af betri spennusögum síðustu ára.

Hyldýpi er einskonar blanda af þessum tveimur meginþráðum höfundarverksins, að hluta til spennusaga, en að hluta til könnun á persónu ungs manns, aðalsöguhetjunnar sem heitir því fallega nafni Sölvi Helgason. Tilvísunin er augljós, Sölvi greyið er tvítugt rekald sem veit ekki vel hvað hann vill með líf sitt, eða hvort hann vill nokkuð með það yfirleitt. Að þessu leyti minnir hann á fyrri sögupersónur í verkum Stefáns Mána, eins og til dæmis ungu mennina í Hótel Kalifornía, Ísrael og Svartur á leik, sem allir eru á einhvern hátt leiksoppar annarra, iðulega kvenna og vonlausra ásta, en einnig vafasamra manna. Stundum reynast þeir ofurlítið vafasamir sjálfir, eins og Stefán í Svartur á leik.

Sem mótvægi við þessi reköld teflir Stefán Máni svo fram sterkum körlum, sterabúntum sem láta sér ekkert fyrir brjósti brenna, en félagar Sölva eru einmitt af því taginu; hér eru þeir augljóslega táknmynd fyrir þann her ungra verðbréfa-gutta sem svo ötullega stuðluðu að fjármálakreppunni, menn sem svífast einskis í viðskiptum, hvort sem það er með fasteignir eða konur.

Allt er þetta vissulega áhugavert, en virkar á stundum eins og hraðskrift, svona næstum því naglasúpulegt. Á hinn bóginn eru einnig sterkir bógar í sögunni. Þeir birtast hvað mest í þeim hálfmystísku töktum sem svo oft einkenna verk Stefáns Mána, lýsingin á vatninu og atburðunum þar er glæsileg og víða sýnir höfundur virkilega flotta takta í að framkalla svimandi andrúmsloft spennu og óhugnaðar.

Úlfhildur Dagsdóttir, október 2009


Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook

Það er ekki endilega varanleikanum fyrir að fara í ljóðabók Ingunnar Snædal, Komin til að vera, nóttin, en ljóðin fjalla aðallega um aðskilnað og ástarsorg. ...
Fjórar barnabækur | 18.03.2010
Fyrir mörgum mörgum árum skrifaði þýski bókmenntafræðingurinn Walter Benjamin grein um mikilvægi sögumennskunnar, þess að segja sögur upphátt fyrir annað fólk sem þá verður að einskonar þátttakendum í frásögninni. ...
Karlsvagninn | 18.03.2010
Gunnur er geðlæknir, vel stæð kona á miðjum aldri. Rétt eftir að brotist hefur verið inn hjá henni og einhverju stolið af því sem venjan er að innbrotsþjófum lítist vel á í ránsferðum, kemur til hennar kona sem hún þekkir lítillega og biður hana um að gæta dóttur sinnar yfir helgina. ...
Æ, heimurinn er svo stór, jólin eru svo stór, ævisögulegu skáldsögurnar eru svo stórar. Og hafið, það er líka stórt. En maður hagar seglum eftir vindi. Nú skellur myrkrið á og þá er ekki hægt að biðja til guða hinna stóru hluta, þegar sólin sést hvergi og samfélagið situr heima í öreindum sínum. ...
Högg á vatni | 18.03.2010
Ný ljóðabók Hermanns Stefánssonar, Högg á vatni, er nokkuð eðlisólík fyrri ljóðabók hans, Borg í þoku, frá 2006. Sú bók fléttaði skemmtilega saman nokkurs konar ferðasögu og ljósmyndum í fallegri bók sem leyfði lesanda að villast um rigningarborg. ...
Hyldýpi | 18.03.2010
Tíu ára strákur sekkur í hyldjúpt og kyrrt vatnið og sér þar sýn; stelpu á aldur við hann sjálfan sem réttir honum eitthvað. Tíu árum síðar verður strákurinn fyrir árás og finnst nakinn í skurði. Hann man ekkert eftir aðdraganda árásarinnar en fréttir svo að sama dag hvarf ung stúlka, sem hann er sannfærður um að sé sú sama og hann sá í vatninu ...
Hvíti tígurinn | 18.03.2010
Ég hef alltaf verið frekar blankur. Aldrei fátækur og aldrei skuldsettur eða liðið nokkurn einasta skort. Ég bara á lítið og eyði litlu. Svona hefur þetta verið öll mín fullorðinsár ...
Hann var sannarlega hrókur alls fagnaðar, nýkrýnda ljóðskáldið Eyþór Árnason, þegar hann tók við bókmenntaverðlaunum Tómasar Guðmundssonar á Borgarbókasafninu hinn skáldlega dag 13. október (sem er afmælisdagur Steins Steinarrs (og pabba)). ...
Horfðu á mig | 18.03.2010
Glæpasögur Yrsu Sigurðardóttur hafa frá upphafi einkennst af því sem kalla mætti samslátt hins forneskjulega, í formi hins yfirnáttúrulega, og hins nútímalega, en sögurnar gerast allar í samtímanum. ...
Hjartsláttur | 18.03.2010
Hjartsláttur er fjórða unglingabók Ragnheiðar, sú fyrsta Leikur á borði kom út árið 2000. Fyrir aðra bók sína, 40 vikur (2001), hlaut hún Barnabókaverðlaun menntaráðs Reykjavíkur og fyrir þá þriðju, Sverðberann (2004) fékk hún Norrænu barnabókaverðlaunin. ...


Booksearch

Author:
Book:


Skipta um leturstærð


Tungumál