Á fullveldisdaginn, miðvikudaginn 1. desember bjóða Íslensku- og menningardeild og Hugvísindasvið Háskóla Íslands til bókmenntafagnaðar þar sem þrír íslenskir rithöfundar verða sæmdir heiðursdoktorsnafnbót við skólann. Höfundarnir eru Álfrún Gunnlaugsdóttir, Matthías Johannessen og Thor Vilhjálmsson.
Á heimasíðu H.Í. segir að skólinn veiti þessum höfundum sinn hæsta heiður fyrir sköpunarstarf þeirra og um leið sendi hann með þessum gjörningi skilaboð um mikilvægi orðsins listar og annarrar frjórrar menningarstarfsemi í íslensku samfélagi, enda gæti hann ekki staðið undir nafni sem þjóðskóli án þess að leggja rækt við íslenska menningu.
Auk sviðsforseta og deildarforseta, taka kennarar og nemendur Íslensku- og menningardeildar þátt í dagskrá athafnarinnar, sem fer fram í Hátíðarsal Háskóla Íslands (Aðalbyggingu). Dagskráin stendur frá kl. 13:30 til 15.
Sjá síður rithöfundanna hér á vefnum:
Álfrún Gunnlaugsdóttir
Matthías Johannessen
Thor Vilhjálmsson
Back