By years

News

Bókaflóð á Ylströnd

Í dag, mánudaginn 13. desember les Eysteinn Björnsson úr bók sinni Hrafnaspark fyrir gesti Ylstrandarinnar í Nauthólsvík. Lesturinn fer fram við heita pottinn og hefst kl. 17:30. Eysteinn er þekktur sundkappi og má búast við því að hann stingi sér til sunds að lestri loknum.

Miðvikudaginn 15. desember lesa síðan þrír höfundar fyrir gesti Ylstrandarinnar, bæði í hádegisopnuninni og að kvöldi. 

Gunnar Eyjólfsson les úr ævisögu sinni Alvara leiksins fyrir hádegisgesti heita pottsins og hefur hann lesturinn kl. 12. Þau Óskar Árni Óskarsson og Lilja Sigurðardóttir mæta svo við kvöldopnunina og les Óskar Árni úr ljóðabókinni Þrjár hendur kl. 17:30 en Lilja úr glæpasögunni Fyrirgefning um kl. 17:45.

Fyrsti upplesturinn í jólabókaflóði Ylstrandarinnar var miðvikudaginn 1. desember en þá las starfsmaður strandarinnar, Ísleifur Friðriksson úr jólakvæðum Jóhannesar úr Kötlum. Þá um kvöldið las Óskar Hrafn Þorvaldsson úr Martröð millana. Þann 6. desember mættu síðan Guðni Th. Jóhannesson og Eiríkur Guðmundsson.

Fylgjast má með dagskrá bókaflóðs Ylstrandarinnar á heimasíðu Nauthólsvíkur.


Back



Senda Send Prenta Print Share on Facebook

Booksearch

Author:
Book:


Skipta um leturstærð


Tungumál