Á föstudaginn kemur, þann 17. desember kl. 17 hóar Sögufélag saman nokkrum höfundum sögu og sagnfræðirita til óformlegrar samkomu um nýjustu bækurnar. Hér gefst færi á að taka sagnfræðinga og höfunda nýrra sögulegra rita tali, ræða um sjónarmið þeirra og bakgrunn verkanna, nálgun þeirra og efnistök.
Meðal þeirra sem verða á staðnum:
Anna Agnarsdóttir og Þórir Stephensen, Ferðadagbækur Magnúsar Stephensen 1807–1808.
Guðni Th. Jóhannesson, Gunnar Thoroddsen. Ævisaga.
Sigrún Pálsdóttir, Þóra biskups og raunir íslenskrar embættismannastéttar.
Sigurður Gylfi Magnússon, Wasteland with Words. A social history of Iceland
Snorri Freyr Hilmarsson, 101 tækifæri.
Unnur Birna Karlsdóttir, Þar sem fossarnir falla. Viðhorf til náttúru og vatnsaflsvirkjana á Íslandi 1900–2008.
Þorgrímur Gestsson, Mannlíf við Sund. Býlið, byggðin og borgin.
Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir, Mörg eru ljónsins eyru.
Staður og stund:
Sögufélag, Fischersundi 3.
Föstudaginn 17. desember kl. 17–19.
Bækurnar verða á boðstólum á sanngjörnu verði.
Léttar veitingar gegn samskotafé.
Allir félagsmenn, sagnfræðingar og áhugamenn um sögu Íslands eru velkomnir.
Back