Síðasta sunnudag aðventu munu rithöfundarnir Gerður Kristný, Ófeigur Sigurðsson, Guðbergur Bergsson, Eiríkur Guðmundsson og Bjarki Bjarnason lesa úr nýútkomnum bókum sínum á Gljúfrasteini. Hefð hefur skapast fyrir lestrum sem þessum á undanförnum árum og segja má fullum fetum að stemmningin í stofu Halldórs og Auðar á Gljúfrasteini er svo alltaf jafn einstök.
Upplestrarnir hefjast kl. 16 og að venju er aðgangur ókeypis. Allir velkomnir!
Sjá nánar á síðu Gljúfrasteins.
Back