Tindabikkjuhafi ársins 2010 er Yrsa Sigurðardóttir og hlýtur hún verðlaunin fyrir skáldsöguna Ég man þig. Það er Glæpafélag Vestfjarða sem að Tindabikkjunni stendur og voru verðlaunin veitt í fyrsta sinn sl. föstudag.
Að launum hlýtur Yrsa viðeigandi verðlaunagrip, sem myndlistakonan Marsibil Kristjánsdóttir hannaði, bókina Vestfirðir í máli og myndum eftir Hjálmar R. Bárðarson sem Eymundsson á Ísafirði gefur, auk tveggja kílóa af skötu í soðið.
Yrsa er stödd í Chile þessa dagana og gat því ekki veitt verðlaununum viðtöku við athöfn á barnum Langa Manga á Ísafirði. Vinkona hennar þar í bæ, Halldóra Hreinsdóttir, tóku við þeim fyrir hennar hönd.
Glæpafélaginu þótti vissara að verðlaunaafhendingin sjálf væri í öruggum höndum og fékk Önund Jónsson yfirlögregluþjón á Ísafirði til að afhenda verðlaunin.
Back