Sunnudaginn 9. janúar kl. 14:00 flytur Útvarpsleikhúsið á Rás 1 leikrit Engill í vesturbænum. Jón Hjartarson skrifaði verkið eftir samnefndri verðlaunasögu Kristínar Steinsdóttur. Leikstjóri er Sigrún Edda Björnsdóttir og með aðalhlutverkin fara þau Árni Beinteinn Árnason og Ilmur Kristjánsdóttir. Tónlistin er eftir Karl Olgeirsson og hljóðvinnsla er í höndum Einars Sigurðssonar.
Engill í vesturbænum segir frá Aski, litlum dreng sem býr með móður sinni í blokk í vesturbænum. Flestir halda að þar búi bara ósköp venjulegt fólk en Askur veit betur. Þarna er varúlfur, Lína Langsokkur, veiðimaður, silfurskotta - og líka engill.
Síður Kristínar Steinsdóttur hér á vefnum
Back