By years

News

Málþing um menningarstefnu

Í tengslum við aðalfund Bandalags íslenskra listamanna, BÍL, verður haldið í málþing um menningarstefnu. Þingið fer fram í Iðnó við Tjörnina laugardaginn 22. janúar kl. 15:00 - 17:00.

Frummælendur:
Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra
Jóhannes Þórðarson, deildarforseti hönnunar- og arkitektúrdeildar Listaháskóla Íslands
Hrafnhildur Hagalín, leikskáld
Fríða Björk Ingvarsdóttir, bókmenntafræðingur og blaðamaður
Atli Ingólfsson, tónskáld
Stjórnandi málþingsins verður Guðrún Erla Geirsdóttir myndlistarmaður

Í frétt frá BÍL segir að hugmyndin að baki málþinginu tengist því starfi sem unnið hefur verið á vettvangi BÍL og aðildarfélaga þess á síðustu tveimur árum. Þá óskaði mennta- og menningarmálaráðherra eftir því að félagið kæmi með beinum hætti að opinberri stefnumótun í menningu og listum. Á þeim tíma hefur BÍL haldið fundi af öllum stærðum og gerðum, starfshópar hafa verið settir á laggirnar, skýrslur skrifaðar og stefnumótun í einstökum listgreinum litið dagsins ljós. Vinnunni við mótun menningarstefnu er þó ekki lokið og kannski lýkur henni aldrei. Félaginu finnst því full ástæða til að skoða stöðuna í upphafi ársins 2011 svo tryggt verði að sú vinna sem listamenn hafa innt af hendi við stefnumótun hingað til verði til að skjóta styrkari stoðum undir starf að menningu og listum. 

Að loknum framsöguerindum verða almennar umræður þar sem frummælendur sitja fyrir svörum.  Í lok dagskrárinnar verður gestum boðið upp á léttar veitingar. 

Málþingið er öllum opið meðan húsrúm leyfir.


Back



Senda Send Prenta Print Share on Facebook

Booksearch

Author:
Book:


Skipta um leturstærð


Tungumál