Föstudaginn 21. janúar kl. 20 verður greint frá niðurstöðum í árlegri ljóðasamkeppni lista- og menningarráðs Kópavogs.
Ljóðasamkeppnin er kennd við Jón úr Vör og fer verðlaunaafhendingin fram á fæðingarafmæli hans. Alls bárust 342 ljóð í keppnina í ár.
Sigurvegarinn fær peningaverðlaun og verðlaunagripinn, göngustaf Jóns úr Vör, áletraðan með nafni sínu til varðveislu í eitt ár auk eignargrips. Handhafi stafsins nú er Gerður Kristný.
Í dómnefnd eru skáldin Gerður Kristný og Sigurður Pálsson, auk Jóns Yngva Jóhannssonar bókmenntafræðings.
Athöfnin fer fram í Salnum og hefst hún með frumsýningu á stuttmynd um líf og starf Jóns úr Vör. Hafsteinn Karlsson, formaður lista- og menningarráðs flytur ávarp. Einnig verða flutt ljóð allra handahafa ljóðstafsins frá upphafi og að lokum verður kynntur nýr verðlaunahafi fyrir árið 2011.
Veitingar verða í boði lista- og menningarráðs í forrými Salarins. Aðgangur er ókeypis og allir eru hjartanlega velkomnir.
Back