By years

News

Vetrarhátíð í Borgarbókasafni

Vetrarhátíð í Reykjavík og nágrenni

Vetrarhátíð verður haldin dagana 11.-13. febrúar og taka fjölmörg söfn og aðrar stofnanir á höfuðborgarsvæðinu þátt. Dagskrá Borgarbókasafns er spennandi að vanda; myndlistasýning, draugasögustund, ljóðaslamm, upplestur ritlistarnema, „Íslendingurinn", skuggaleikhús og Heimsdagur barna.

Dagskrá:

Safnanótt 11. febrúar:
Aðalsafn, Tryggvagötu 15. Safnið er opið til miðnættis

ARTÓTEKSSÝNING
Alla dagana
Freyja Önundardóttir sýnir olíumálverk á striga. Freyja hefur sýnt verk sín víða um land og erlendis og er þetta tuttugasta einkasýning hennar.
Reykjavíkurtorg á 1. hæð

DRAUGASÖGUSTUND
Kl. 19 – 20
Þorbjörg Karlsdóttir les íslenskar draugasögur við kertaljós fyrir börn og fylgdarlið þeirra.
Barnadeild á 2. hæð

LJÓÐASLAMM
Kl. 20:30 – 21:15
Ungt fólk stígur á stokk og flytur frumsamda texta, suma í bland við tónlist, myndefni og fleira. Þau sem koma fram eru Drífa Thoroddsen, Jósef Ari Ásgrímsson, dúettinn Ljóðverk sem samanstendur af þeim Má Mássyni Maack og Snorra Rafni Hallssyni og tríó skipað Brynjari Jóhannssyni, Stefáni Ólafi Ólafssyni og Matthíasi Péturssyni. Auk þess treður upp ljóðasveitin Greitt til hliðar plús tveir sem sigraði Ljóðaslamm 2010 og Sunna Björk Þórarinsdóttir flytur ljóð eftir Ástríði Tómasdóttur og Birtu Þórhallsdóttur.
Kynnir er Freyr Eyjólfsson sem ætlar líka að taka lagið.
Bókatorg á 1. hæð

MELRAKKAR
22:00 – 23:00
Ritlistarnemar í Háskóla Íslands flytja frumsamin ljóð og prósa sem fjalla um allt frá bárujárnshöllum og fölskum meydómum til boðorða þjóðþekktra einstaklinga. Skáldin eru Bergþóra Snæbjörnsdóttir, Bragi Páll Sigurðarson, Brynja Huld Óskarsdóttir, Esther Ýr Þorvaldsdóttir, Halla Margrét Jóhannesdóttir, Hekla Björt Helgadóttir, Hertha Richardt Úlfarsdóttir og Hlín Ólafsdóttir.
Bókatorg á 1. hæð

ÍSLENDINGUR?
KL. 19 – 24
Hvað er Íslendingur? Hver er Íslendingur? Gestir eru hvattir til að skrifa hugleiðingar um efnið í OPNA BÓK, myndskreyta fyrirbærið, spá fyrir því, spjalla við það ..... Á sama stað verður stillt út bókum sem varpa ólíku ljósi á þetta viðfangsefni – bókum um þjóðerni og þjóðernisumræðu, erlendum bókum sem hafa haft áhrif á íslenskar bókmenntir, skáldskap sem spyr spurninga um Ísland og segir ólíkar sögur Íslendinga, bókum erlendra höfunda um Ísland, o.s.frv.
Reykjavíkurtorg á 1. hæð

Laugardagur 12. febrúar:

SKUGGALEIKHÚS Í AÐALSAFNI
KL. 14-16
Lærðu að búa til brúður og setja upp þitt eigið skuggaleikhús. Leiðbeinendur eru Bryndís Gunnarsdóttir og Kristín Arngrímsdóttir.

HEIMSDAGUR BARNA Í GERÐUBERGI
KL. 13-17
Heimsdagur barna verður í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi, Gerðubergssafni Borgarbókasafns og frístundamiðstöðinni Miðbergi. Á Heimsdeginum býðst börnum og fjölskyldum þeirra að taka þátt í fjölbreyttum listsmiðjum. Að þessu sinni tengjast smiðjurnar goðsögum frá ýmsum heimshornum.

Listsmiðjurnar á Heimsdeginum standa yfir frá kl. 13 til 16. Í smiðjunum er hægt að taka þátt í að búa til stóran dreka sem leiddur verður út á lokahátíð eða búa til lítinn dreka til að taka með sér heim. Hægt er búa til verndargrip goðanna, hrafna Óðins, óvenjuleg dýr og dverga úr norrænu goðafræðinni, bragða á Valkyrjuglöggi, búa til rómverskt hljóðfæri eða leikbrúðu úr grísku goðafræðinni. Einnig gefst börnum kostur á að taka þátt í suðrænni danssmiðju, bregða sér í gervi Drakúla eða læra nokkur töfrabrögð í galdrasmiðju Merlins.


Back



Senda Send Prenta Print Share on Facebook

Booksearch

Author:
Book:


Skipta um leturstærð


Tungumál