By years

News

ÓKEIPISS - Myndasöguáskorun

Þann 7. maí næstkomandi verður hinn árlegi Ókeipis myndasögudagur haldinn hátíðlegur.

Þá mun verslunin Nexus gefa fullt af myndasögublöðum. Meðal annars verður gefið nýtt íslenskt myndasögublað frá ÓkeiBæ sem hefur fengið nafnið ÓkeiPiss.

Nexus og ÓkeiBæ skora á myndasögufólk að vera með og senda inn frumsamda myndasögu sem uppfyllir eftirtalin skilyrði:

1. Hún má vera 1-6 síður.
2. Hún má vera svarthvít og hún má vera í lit.
3. Hún má vera eftir einn aðila eða fleiri.
4. Hún má vera eftir ungmenni eða gamalmenni.

Topp 5 sögur munu birtast á síðum ÓkeiPiss.
Topp 1 höfundur fær útgáfusamning hjá ÓkeiBæ.

Myndasaga sendist í góðri upplausn á: okei@okei.is

Skilafrestur er 1.apríl.


Back



Senda Send Prenta Print Share on Facebook

Booksearch

Author:
Book:


Skipta um leturstærð


Tungumál