Til bókaorma á öllum aldri og af báðum kynjum.
Þér er boðið í Borgarbókasafnið við Tryggvagötu sunnudaginn 27. febrúar kl. 16.00.
Þar verður tilkynnt hvaða níu bækur verða tilnefndar til Fjöruverðlaunanna, bókmenntaverðlauna kvenna, árið 2011.
Um er að ræða þrjár bækur í hverjum flokki: skáldverk fyrir fullorðna, fræðibækur og barna- og unglingabækur.
Örstuttir upplestrar úr verðlaunabókum síðasta árs og laufléttar veitingar.
Allir eru velkomnir.
Back