
Kvikmyndaframleiðandinn Sigurjón Sighvatsson hefur tryggt sér kvikmyndaréttinn á skáldsögu Yrsu Sigurðardóttur, Ég man þig, sem var ein mest selda bók liðins árs.
Ég man þig er í senn glæpasaga og hrollvekja og Sigurjón segir hana vera "spennandi efni í kvikmynd sem í senn er alíslensk en um leið alþjóðleg".
Sigurjón Sighvatsson hefur framleitt yfir fjörutíu kvikmyndir og sjónvarpsseríur, aðallega sem sjálfstæður framleiðandi í Hollywood. Kvikmynd hans Wild at Heart í leikstjórn David Lynch hlaut Gullpálmann í Cannes á sínum tíma en meðal leikara sem hann hefur unnið með eru Harrison Ford, Jeff Bridges, Tim Robbins, Nicholas Cage, Natalie Portman og Toby Maguire. Sigurjón er nú að ljúka lokafrágangi kvikmyndarinnar The Killer Elite með Robert DeNiro, Jason Statham og Clive Owen í aðalhlutverkum og mun hún verða tilbúin fyrir haustið.
Back