By years

News

Gýpugarnagaul

Laugardaginn 16. apríl sýnir Möguleikhúsið nýtt íslenskt barnaleikrit í Gerðubergi, sem byggt er á gömlum íslenskum munnmælasögum og kveðskap. Sýningin hefst klukkan 16.

Söngkona, sem ef til vill er líka álfkona, og tónlistarmaður, sem kannski er tröll, vita ekki hvaðan á sig stendur veðrið þegar til þeirra stormar glorhungruð furðupersóna í leit að risa með gullhár, ásamt vini sínum litla snjótittlingnum. Það má með sanni segja að hún setji rólyndislega tilveru þeirra á annan endann með hamaganginum í sér en spurningin er hvort þeim tekst að hafa hemil á öllum gýpuganginum.
 
Gýpugarnagaul er sýning sem byggð er á gömlum íslenskum munnmælasögum og kveðskap. Við efnissöfnun var víða leitað fanga, í hljóðritasafni Árnastofnunar sem og í rituðum heimildum. Sögum sem lengi hafa lifað í munnlegri geymd er fléttað saman við vísur og kvæði svo úr verður eitt samfellt ævintýri kryddað söng og hljóðfæraleik.

Í leikritinu segir frá Gýpu, sem er sífellt svöng og gleypir í sig allt sem á vegi hennar verður án þess að hugsa um afleiðingarnar. Áhorfendur kynnast líka Snæja snjótittlingi sem á ráð undir rifi hverju en breytist í sólskríkju þegar sólin hækkar á lofti, heyra af risanum ógurlega með gullhárin, prinsessunni Dettiklessu og fleiri furðum. Allt er þetta kryddað með vísum og kviðlingum, söng og leik meðan undir hljómar garnagaul Gýpu.

Á sviðinu eru leikkonan Alda Arnardóttir, söngkonan Þórunn Elín Pétursdóttir og tónlistarmaðurinn Birgir Bragason með stóra kontrabassann sinn. Leikstjóri sýningarinnar er Sigrún Valbergsdóttir, umsjón tónlistar er í höndum Báru Grímsdóttur en leikmynd og búninga hannar Messíana Tómasdóttir. Handritið er eftir Pétur Eggerz og Sigrúnu Valbergsdóttur, en sérlegur ráðgjafi hópsins er Rósa Þorsteinsdóttir, þjóðfræðingur og rannsóknarlektor á þjóðfræðisviði hjá Stofnun Árna Magnússonar.  
 
Sýningin er ætluð börnum á aldrinum 2ja - 10 ára. Miðinn kostar 1.500 krónur og panta má í síma 562-2669 eða á moguleikhusid@moguleikhusid.is


Back



Senda Send Prenta Print Share on Facebook

Booksearch

Author:
Book:


Skipta um leturstærð


Tungumál