By years

News

Oflátungur á erlendri grundu

Fimmtudagksvöldið 28. apríl kl. 20 flytur Ármann Jakobsson, íslenskufræðingur, fyrirlestur á rannsóknarkvöldi Félags íslenskra fræða sem hann nefnir Oflátungur á erlendri grundu: Jórsalaferð Sigurðar konungs sem sjónarspil.

Erindið er haldið í tilefni af útgáfu Hins íslenzka fornritafélags á Morkinskinnu og er helgað einum mikilvægasta viðburði sem frá er greint í ritinu: krossferð Sigurðar konungs Magnússonar, en frásögn Morkinskinnu af henni kemur nú á prent í fullri lengd í fyrsta sinn í 180 ár. Ármann mun ræða krossferðina sem „sjónarspil“, leikrænt eðli hennar og hvernig konungurinn setur sig á svið nálægt erlendum konungum sem mun ríkari og voldugri en hann er í raun og veru.

Ármann Jakobsson er dr.phil. í íslenskum bókmenntum frá Háskóla Íslands og er dósent í íslensku við sama skóla. Hann hefur skrifað bækur og greinar um íslenskar miðaldabókmenntir og gefið út Morkinskinnu ásamt Þórði Inga Guðjónssyni.

Rannsóknarkvöldið fer fram í húsi Sögufélagsins við Fischersund.


Back



Senda Send Prenta Print Share on Facebook

Booksearch

Author:
Book:


Skipta um leturstærð


Tungumál