By years

News

Er sæmdarréttur tímaskekkja?

Föstudaginn 29. apríl kl. 12:10 - 13:30 bjóða ReykjavíkurAkademían og meistaranám í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst til málstofu í húsakynnum ReykjavíkurAkademíunnar við Hringbraut. Þar verður rætt um sæmdarréttinn í íslenskum höfundaréttarlögum og menningarlegu samhengi. Frummælendur eru tveir ungir fræðimenn sem nálgast efnið út frá ólíkum fræðasviðum en að loknum stuttum erindum þeirra verður boðið upp á umræður.

Í tilkynningu frá aðstandendum málstofunnar segir: „Undanfarnar vikur hafa skapast umræður um tilgang og erindi sæmdarréttar í prentverki, listum og stafrænni menningu. Í því samhengi hefur verið spurt um tengsl sæmdarréttar og tjáningarfrelsis, tækniþróunar og siðferðis. Þá vilja sumir skoða sæmdarréttinn í íslenskum höfundaréttarlögum sem réttindi sem verja verði eins og hver önnur grundvallar mannréttindi á meðan aðrir líta hann sem heftandi fyrir sköpun og listrænt frelsi. Það er því full ástæða til þess að fræðast betur um þetta mál og ýmsar hliðar þess.

Dagskrá:
Teitur Skúlason: Sæmdarréttur í stafrænu umhverfi
Egill Viðarsson: Sæmdarréttur er tilræði við tjáningarfrelsi

Teitur Skúlason er lögfræðingur útskrifaður frá Háskóla Íslands vorið 2010. Meistararitgerð hans bar yfirskriftina „Framsal á sæmdarrétti samkvæmt 3. mgr. 4. gr. höfundalaga nr. 73/1972. Teitur stundar meistaranámi við Stokkhólmsháskóla, bæði í Evrópskum hugverkarétti og lögum um upplýsingatækni.

Egill Viðarsson er meistaranemi í þjóðfræði við Háskóla Íslands og vinnur að rannsókn á höfundarétti í tengslum við „höfundalaust“ efni.

Fundarstjóri verður Njörður Sigurjónsson, lektor við Háskólann á Bifröst.

Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.

ReykjavíkurAkademían er í JL-húsinu, 4. hæð, Hringbraut 121.



Back



Senda Send Prenta Print Share on Facebook

Booksearch

Author:
Book:


Skipta um leturstærð


Tungumál