Árlegri myndasögusamkeppni Borgarbókasafns og Myndlistaskólans í Reykjavík lauk sunnudaginn 8. maí með opnun sýningar á þeim sögum sem inn bárust. Yfirskrift keppninnar var að þessu sinni Ofurhetjan, til heiðurs hetjunni Wonder Woman sem á sjötugsafmæli í ár. Á sjötta tug myndasöguhöfunda á aldrinum 10 til 21 árs sendu sögur sínar í keppnina og eru þær með ýmsu sniði: blýants-, blek- og tölvuteikningar, margar svarthvítar og aðrar tré-, túss- eða vatnslitaðar, og þó nokkrar klippimynda- og ljósmyndasögur. Úr þessum hópi valdi dómnefnd einn sigurvegara og sex til viðbótar fengu viðurkenningu.
Fyrstu verðlaun hlaut Elín Edda Þorsteinsdóttir fyrir söguna Góðan daginn, en þar segir frá rólegum fundi hversdagshetju og einmana fíls niðri við strönd.
Þeir keppendur sem hlutu sérstaka viðurkenningu nálguðust þema keppninar á mismunandi hátt: Saga Inga Rúnars Kjartanssonar segir frá ofurhetju sem hrekur burt skrímsli með því að bjóða því mjólkurhristing; Kári Haraldsson segir frá ofurhetju sem leysir vandamál með klósettpappír og kallast því einmitt Herra klósettpappír; Ofurhendin í sögu Nicholas Þórs Peters Helgasonar er æpandi ófreskja sem kemur hætt stöddum fingrum til bjargar; Batman kid Karenar Aspar Einarsdóttur er ef til vill ekki sú ofurhetja sem hún sýnist vera en drýgir þó hetjudáð; Viðar Vignisson segir frá Risum í Reykjavík, sem virðast óþolinmóðir og hvatvísir en vinna þó hjörtu fólksins; og Chickman Hafrúnar Kolbeinsdóttur spyr hvað hefði getað orðið ef Bruce Wayne hefði séð eitthvað annað en leðurblöku út um glugga sinn á viðkvæmu augnabliki fyrir ríflega 70 árum.
Í fyrstu verðlaun voru námskeið hjá Myndlistaskólanum í Reykjavík og viðurkenningarhafar hlutu teiknisett í boði Nexus.
Sýningin, sem er á 1. hæð aðalsafns Borgarbókasafns í Tryggvagötu 15, stendur út júní.
Hér fyrir neðan má sjá síður úr nokkrum af þeim sögum sem hlutu viðurkenningu:
Góðan daginn eftir Elínu Eddu Þorsteinsdóttur

Batman kid eftir Karen Ösp Einarsdóttur (brot)

Herra klósettpappír eftir Kára Haraldsson (brot)

Back