By years

News

Núna ertu hjá mér

Ny islandsk poesiNýlega kom út hjá danska forlaginu Arena safn þýðinga á ljóðum tíu íslenskra skálda, Ny islandsk poesi.

Bókin er sú þriðja í sérstökum ljóðaþýðingaflokki hjá Arena, en áður hafa þeir gefið út söfn pólskra og þýskra ljóða. Um vandaðar tvímála útgáfur er að ræða þar sem leitast er við að kynna það sem efst er á baugi hjá ungum skáldum í hverju landi um sig. Arena er svokallað höfundaforlag og á sér merka sögu sem óháð og framsækin bókaútgáfa.

Um þýðingar á ljóðum íslensku skáldanna sáu Erik Skyum Nielsen og Nina Søs Vinther sem jafnframt er ritstjóri bókarinnar. Sjá nánar um bókina á vef Arena.

Nina Søs Vinther er stödd á Íslandi um þessar mundir og af því tilefni verður blásið til upplesturs á Bakkus í kvöld, þriðjudagskvöldið 10. maí kl. 20:30. Nina, sem er sjálf skáld, mun lesa úr verkum sínum ásamt íslenskum skáldum.

Auk Ninu koma fram sex af skáldunum tíu sem eiga ljóð í bókinni; Kristín Eiríksdóttir, Ingólfur Gíslason, Kári Páll Óskarsson, Sölvi Björn Sigurðsson, Haukur Ingvarsson og Kristín Svava Tómasdóttir.

Auk þeirra eiga Steinar Bragi, Eiríkur Örn Norðdahl, Ófeigur Sigurðsson og Ingunn Snædal ljóð í bókinni.

Fyrir þá sem ekki vita er Bakkus til húsa í Tryggvagötu 22.


Back



Senda Send Prenta Print Share on Facebook

Booksearch

Author:
Book:


Skipta um leturstærð


Tungumál