Ormstunga hefur gefið út bókina Grettir sterki með sextán brotum úr Grettis sögu og jafnmörgum teikningum Halldórs Péturssonar. Bókin er á íslensku, ensku og þýsku. Myndirnar sýna atburði úr lífi Grettis og koma nú fyrst fyrir sjónir almennings á bók. Í ítarlegum inngangi veltir Örnólfur Thorsson fyrir sér byggingu sögunnar og stöðu hennar meðal Íslendingasagna.
Halldór Pétursson (1916–1977) sótti einkatíma í teikningu hjá málurunum Guðmundi Thorsteinsson (Mugg) og Júlíönu Sveinsdóttur.
Að loknu stúdentsprófi árið 1935 hélt hann til Kaupmannahafnar, þar sem hann stundaði myndlistarnám. Árin 1942–45 var hann við framhaldsnám í Bandaríkjunum, í Minneapolis School of Art og Art Students League í New York. Halldór vann jöfnum höndum að grafískri hönnun, teikningum, olíumálverkum og vatnslitamyndum. Teikningar hans við söguna um Gretti sterka eru með síðustu teikningum sem hann vann.
Back