
Menningar- og þróunarráð Kópavogs efnir í ellefta sinn til árlegrar ljóðasamkeppni undir heitinu Ljóðstafur Jóns úr Vör. Öllum skáldum er velkomið að senda ljóð í keppnina en skilafrestur rennur út 3. desember.
Veitt verða vegleg verðlaun og fær verðlaunaskáldið auk þess til varðveislu, í eitt ár, göngustaf áletraðan með nafni sínu. Handhafi hans nú er Steinunn Helgadóttir, myndlistarmaður og ljóðskáld.
Greint verður frá niðurstöðum samkeppninnar og verðlaun veitt á afmælisdegi Jóns úr Vör 21. janúar 2012. Jón úr Vör bjó nánast allan sinn starfsaldur í Kópavogi en tilgangur keppninnar er að efla og vekja áhuga á íslenskri ljóðlist.
Ljóðum skal skilað með dulnefni og nafn, heimilisfang og sími skáldsins látið fylgja með í lokuðu umslagi auðkennt með sama dulnefni. Ljóðin mega ekki hafa birst áður.
Utanáskrift er: Ljóðstafur Jóns úr Vör, menningar- og þróunardeild Kópavogs, Fannborg 2, 200 Kópavogur.
Back