Baldur Óskarsson, ljóðskáld, hlýtur í ár verðlaun úr rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins. Viðurkenningin er veitt árlega á afmæli Ríkisútvarpsins. Athöfnin fór fram á Markúsartorgi í Efstaleiti í gær, 20. desember.
Ritferill Baldurs spannar hálfa öld. Fyrsta verk hans var smásagnasafnið Hitabylgja sem kom út árið 1960. Þremur árum síðar kom út eftir hann skáldsagan Dagblað. Árið 1966 sendi hann frá sér sína fyrstu ljóðabók, Svefneyjar, og upp frá því hefur hann einkum einbeitt sér að ljóðagerð.
Nú hafa komið út fjórtán ljóðabækur eftir hann, sú nýjasta, Langtfrá öðrum grjótum, var gefin út í fyrra.
Þá var Baldur Óskarsson fréttamaður á Ríkisútvarpinu um árabil.
Sjá meira um Baldur á bokmenntir.is
Back