By years

News

Úthlutun úr Menningarsjóði Hlaðvarpans 2012

Lay Low, Brostinn stengur

Lay Low var ein þeirra sem hlaut styrk frá Hlaðvarpanum á síðasta ári.

Menningarsjóður Hlaðvarpans úthlutar rúmum 7 milljónum króna til menningarmála kvenna. Úthlutunin fer fram í Iðnó þann 5. janúar 2012 kl. 17.00. Í þessari fimmtu úthlutun úr sjóðnum verða veittir 18 styrkir en alls bárust vel á annað hundrað umsóknir og hafa þær aldrei verið fleiri. Við úthlutun er þess gætt að styrkirnir nýtist sem flestum konum og haft er í huga að sem flest svið menningar njóti stuðnings.

Árið 1985 ákvað hópur kvenna að festa kaup á húsunum við Vesturgötu 3 í Reykjavík. Þau voru þá í nokkurri niðurníðslu og hætta á að þessi glæsilegu hús yrðu rifin. Ákveðið var að stofna hlutafélag kvenna sem keypti húsin og gekk undir nafninu Hlaðvarpinn. Smátt og smátt voru húsin gerð upp og þar blómstraði ýmis konar menningarstarfsemi um árabil. Þar var rekið leikhús, bæði í kjallara og sal, haldinn fjöldi tónleika og funda. Herbergi voru leigð út til félaga og fræðikvenna og þannig mætti áfram telja. Viðgerðir og rekstur voru félaginu þung í skauti og skuldir söfnuðust upp. Þar kom að ákveðið var að hætta rekstrinum og selja húsin.

Í samþykktum Hlaðvarpans var kveðið á um að yrði félagið lagt niður skyldi andvirði húsanna varið til að styrkja menningarstarfsemi kvenna.

Ákveðið var því að stofna menningarsjóð kvenna og verður nú úthlutað úr sjóðnum þriðja árið í röð. Fjölgun umsókna milli ára sýnir glöggt hve frjó og fjölbreytt menningarstarfsemi kvenna er á Íslandi og að í erfiðu árferði skortir ekki á frumkvæði kvenna.

Sjá nánar á síðu Hlaðvarpans.


Back



Senda Send Prenta Print Share on Facebook

Booksearch

Author:
Book:


Skipta um leturstærð


Tungumál