By years

News

Alvara málsins - ráðstefna um ólæsi


Laugardaginn næstkomandi, 21. janúar, verður haldin ráðstefna í Norræna húsinu undir yfirskriftinni ALVARA MÁLSINS – Bókaþjóð í ólestri. Þar verður fjallað um ískyggilegar niðurstöður rannsókna sem sýna að ört stækkandi hópur ungs fólks getur ekki lesið sér til gagns, hvað þá gamans.

Sjálfsprottinn hópur rithöfunda stendur að undirbúningi ráðstefnunnar og það er von þeirra að hún marki upphaf að þjóðarátaki um eflingu lesturs og vitundarvakningu um læsi sem lífsgæði. Hópurinn skorar á stjórnvöld, stofnanir, fyrirtæki, skóla og heimili um allt land að taka í kjölfarið við keflinu og leggja sitt af mörkum til að snúa þróuninni við – það dugar ekkert minna – velferð og menning bókmenntaþjóðar er í húfi!

Dagskrá:

Ávarp – Jón Kalman Stefánsson, rithöfundur.

Lestur er málið: Hrafnhildur Ragnarsdóttir, prófessor og forstöðumaður Rannsóknarstofu um þroska, mál og læsi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.

Læsi er skilningur: Daníel Andri Halldórsson, nemi í 10. bekk í Giljaskóla á Akureyri.

Tónlistaratriði.

Kaffihlé

Lestrarhestamennska - heillandi fjölskyldusport: Brynhildur Þórarinsdóttir, rithöfundur og lektor við Háskólann á Akureyri.

Lestur er bæði yndisleg og uppbyggileg iðja: Guðmundur Engilbertsson, lektor kennaradeild og sérfræðingur á miðstöð skólaþróunar við hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri.

Tónlistaratriði.

Dagskráin hefst kl. 14:00 og lýkur um kl. 16:00.  Dagskrárstjóri er Eva María Jónsdóttir


Hópur rithöfunda vekur athygli á ALVÖRU MÁLSINS og stendur að ráðstefnunni í samvinnu við Rithöfundasamband Íslands, Reykjavík Bókmenntaborg Unesco, Rannsóknarstofu um þroska, mál og læsi á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og Norræna húsið.

Alvara málsins


Back



Senda Send Prenta Print Share on Facebook

Booksearch

Author:
Book:


Skipta um leturstærð


Tungumál