By years

News

Deilurnar um Vísur Vatnsenda-Rósu

Egill Viðarsson, þjóðfræðingur og tónlistarmaður, heldur hádegisfyrirlestur við tónlistardeild LHÍ í Sölvhóli föstudaginn 20. janúar kl. 12-12:45. Yfirskrift erindisins er „Höfundarréttur, þjóðlög og eignarhald á menningu: Deilurnar um Vísur Vatnsenda-Rósu“.

Í erindi sínu mun Egill mun kynna efni MA-rannsóknar sinnar, en hún fjallaði um deilur sem spunnust í kring um lagið Vísur Vatnsenda-Rósu við lok síðustu aldar og upphaf þessarar. Málið hófst þannig að Jón Ásgeirsson tónskáld tók þjóðlagið Enginn lái öðrum frekt, sem finna má í þjóðlagasafni séra Bjarna Þorsteinssonar, og vann úr því stærra verk, lagið sem Íslendingar þekkja sem Vísur Vatnsenda-Rósu. Lagið var gefið út í ýmsum útgáfum, en árið 1995 gerði Jón athugasemd við notkun lagsins í myndinni Tár úr steini þar sem hann taldi að brotið hefði verið á höfundarrétti sínum. Það olli deilum milli hans og Hjálmars H. Ragnarssonar, tónlistarstjóra myndarinnar, sem enduðu með því að STEF lét sérfróða menn á sínum snærum vinna mat á eignaraðild Jóns að laginu. Niðurstaðan varð sú að Jón ætti 10/12 hluta þess, og því mætti kalla það tónverk eftir hann. Þetta mat varð mjög umdeilt og fleiri deilur spruttu í kjölfarið, m.a. við Björk Guðmundsdóttur og Stefán S. Stefánsson. Þessar deilur verður raktar og skoðað verður hvernig þær hvernig þær endurspegla og varpa ljósi á vandamál sem bundin eru við höfundarrétt í víðara samhengi.

Allir velkomnir og er aðgangur ókeypis.


Back



Senda Send Prenta Print Share on Facebook

Booksearch

Author:
Book:


Skipta um leturstærð


Tungumál