By years

News

Einar Kára og Gerður Kristný á Norðurbryggju á morgun
Á morgun, miðvikudaginn 25. janúar kl. 20, munu rithöfundarnir Einar Kárason og Gerður Kristný lesa upp úr verkum sínum og ræða þau á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn.
 
Einar Kárason og Gerður Kristný eiga það sameiginlegt að hafa hver á sinn sérstæða hátt kafað ofaní ríkan bókmenntaarf miðalda og nýtt sér hann við sköpun verka sinna.
 
Í skáldsögum sínum Óvinafagnaði (Fjendemøde) og Ofsa (Raseri) glímir Einar Kárason við efni frá Sturlungaöld, þar sem lesendur eru færðir inní hringiðu átaka þessarar valdamiklu ættar, sem ríkti á Íslandi á 13. öld. Að sama skapi sækir Gerður Kristný efni í ljóðasafn sitt Blóðhófnir (Blodhingst) til Skírnismála.
 
Á Norðurbryggju munu þau lesa úr og kynna þessi verk sín og ræða mismunandi sjónarhorn og nálgun á því að vinna með texta frá miðöldum.
 
Bókmenntakvöldið er fyrsta í röð fjögurra sem Norðurbryggja hefur skipulagt í samstarfi við PILK (Projektgruppen Islandsk Litteratur i København).
 
Nánari upplýsingar um bókmenntakvöldin má finna hér á heimasíðu Norðurbryggju: www.bryggen.dk.
Back



Senda Send Prenta Print Share on Facebook

Booksearch

Author:
Book:


Skipta um leturstærð


Tungumál