By years

News

Bókakaffi – vondir menn og vafasamar konur

Fyrsta Bókakaffi ársins í Gerðubergi verður á dagskrá miðvikudagskvöldið 25. janúar kl. 20. Þar mun Ingvi Þór Kormáksson fjalla um upphaf glæapasagnaritunar hérlendis og erlendis, fara yfir sögu þessarar bókmenntagreinar í stuttu máli og velta fyrir sér glæpasagnaskrifum á Íslandi upp á síðkastið.

Ingvi Þór Kormáksson er bókasafnsfræðingur við Borgarbókasafn og nam einnig bókmenntir við H.Í. og háskólann í Kaupmannahöfn. Árið 2010 kom út eftir hann smásagnasafnið Raddir úr fjarlægð. Í þeirri bók má finna söguna Hliðarspor sem hlaut 1. verðlaun Gaddakylfunnar 2009. Hann þýddi einnig bókina Viskíbörnin sem út kom 1999. Ingvi hefur skrifað umsagnir um bækur, aðallega glæpasögur, fyrir Bókmenntavefinn frá 2003.

Dagskráin er samstarfsverkefni Menningarmiðstöðvarinnar Gerðubergs og Borgarbókasafns Reykjavíkur.


Back



Senda Send Prenta Print Share on Facebook

Booksearch

Author:
Book:


Skipta um leturstærð


Tungumál