By years

News

Íslensku bókmenntaverðlaunin afhent

Guðrún Eva Mínervudóttir og Páll Björnsson hljóta Íslensku bókmenntaverðlaunin 2011, en verðlaunin voru afhent seinni partinn í dag.

Guðrún Eva hlaut verðlaunin í flokki fagurbókmennta fyrir skáldsöguna Allt með kossi vekur; Páll Björnsson í flokki fræðirita og rita almenns efnis fyrir bók sína um Jón Sigurðsson, Jón forseti allur?: táknmyndir þjóðhetju frá andláti til samtíðar.

Lesið umfjöllun Úlfhildar Dagsdóttur um Allt með kossi vekur hér á bókmenntavefnum. Eða lítið á síður Guðrúnar Evu, einnig hér á vefnum.

Hér er hins vegar ekkert fleira að finna um Pál Björnsson eða bók hans, eins og gengur. Við óskum honum samt sem áður til hamingju, vitanlega, og Guðrúni Evu sömuleiðis.

Allt með kossi vekur Jón forseti allur?


Back



Senda Send Prenta Print Share on Facebook

Booksearch

Author:
Book:


Skipta um leturstærð


Tungumál