By years

News

Tilnefningar til viðurkenningar Hagþenkis 2011

Tilnefningar til viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, hafa verið tilkynntar. Sjálf viðurkenningin verður veitt að mánuði liðnum, sirka, en tilnefningarnar – ásamt umsögn dómnefndar – eru eftirfarandi. Fyrir neðan má að lokum sjá mynd af hinum tilnefndu höfundum og ritstjórum:

Birna Lárusdóttir aðalhöfundur og ritstjóri: Mannvist. Sýnisbók íslenskra fornleifa. Bókaútgáfan Opna.
„Afar áhugavert rit sem kveikir nýja sýn á fjölbreytileika íslenskra fornleifa, ekki síst þeirra sem leynast við hvert fótmál.“

Erla Hulda Halldórsdóttir: Nútímans konur. Menntun kvenna og mótun kyngervis á Íslandi 1850-1903. Sagnfræðistofnun, RIKK og Háskólaútgáfan.
„Skörp og lipur greining á því hvernig íslenska nútímakonan varð til, verk unnið af næmni og djúpri þekkingu á viðfangsefninu.“

Jóhann Óli Hilmarsson: Íslenskur fuglavísir. Mál og menning.
„Lykill að fuglalífi á Íslandi í máli og myndum, fróðleiksnáma og happafengur fyrir alla náttúruunnendur.“

Jón Yngvi Jóhannsson: Landnám. Ævisaga Gunnars Gunnarssonar. Mál og menning.
„Heildstæð úttekt á lífi og list eins merkasta rithöfundar Íslendinga sem sýnir manninn og lífsverk hans í nýju og skarpara ljósi.“

Ólafur Kvaran ritstjóri: Íslensk listasaga I-V frá síðari hluta 19. aldar til upphafs 21. aldar. Forlagið og Listasafn Íslands.
„Grundvallarrit, unnið af faglegum metnaði höfunda sem leiða á aðgengilegan hátt í ljós hugmyndafræðilegt og samfélagslegt samhengi í þróun myndlistar á Íslandi.“

Páll Björnsson: Jón forseti allur? Táknmyndir þjóðhetju frá andláti til samtíðar. Sögufélag.
„Frumlegt og vandað verk þar sem nýjum fræðilegum aðferðum og kenningum er beitt á nærtækt efni á aðgengilegan og fjölbreyttan hátt.“

Pétur Pétursson: Trúmaður á tímamótum. Ævisaga Haralds Níelssonar. Hið íslenska bókmenntafélag.
„Fróðleg og greinandi frásögn af lífshlaupi Haralds, trúarlífi hans og fræðistörfum, þar sem umróti í trúarlífi landsmanna og hlut hans í því eru gerð góð skil.“

Sigríður Víðis Jónsdóttir: Ríkisfang: Ekkert. Flóttinn frá Írak á Akranes. Mál og menning
„Metnaðarfullt verk sem samþættir með upplýsandi og áhrifamiklum hætti lífshlaup einstaklinga og sögulega atburði sem þeir hafa litla sem enga stjórn á.“

Sylvía Guðmundsdóttir ritstjóri: Lestrarlandið. Námsgagnastofnun.
„Lofsvert framtak ritstjóra sem um árabil hefur virkjað rithöfunda og sérfræðinga til að semja og útbúa fjölbreytt og vandað lestrarefni fyrir byrjendur.“

Úlfhildur Dagsdóttir: Sæborgin. Stefnumót líkama og tækni í ævintýri og veruleika. Háskólaútgáfan.
„Fjallar á ögrandi og frumlegan hátt um samspil menningar og tækni, um flöktandi mörk veruleika og ímyndunar, líftækni og skáldskapar.“

Tilnefningar til viðurkenningar Hagþenkis 2011


Back



Senda Send Prenta Print Share on Facebook

Booksearch

Author:
Book:


Skipta um leturstærð


Tungumál