Uppheimar fagna viku bókarinnar og sumardeginum fyrsta þann 19. apríl með útgáfu fjögurra ljóðabóka.
Af því tilefni bjóða Uppheimar til ljóðakvölds í húsakynnum sínum við Stórhöfða í Reykjavík (beint á móti Bílasölu Guðfinns) að kvöldi sumardagsins fyrsta klukkan 21.00.
Nýju bækurnar verða kynntar og höfundar og þýðandi lesa úr þeim.
Bækur þessar eru:
Birtan er brothætt – braghendur og hækur eftir Njörð P. Njarðvík
Hér vex enginn sítrónuviður eftir Gyrði Elíasson
Leitin að upptökum Orinoco eftir Ara Trausta Guðmundsson
Skrifað í stein, ljóðaúrval eftir Kjell Espmark, Njörður P. Njarðvík valdi og íslenskaði
Back