Úrslit voru tilkynnt í myndasögusamkeppni Borgarbókasafns á laugardag, og sýning opnuð á þeim sögum sem bárust í keppnina.
Fyrsti árgangur tímaritraðarinnar 1005 kemur út 10. maí næstkomandi, í tilefni af því býður Kind útgáfa til vorfagnaðar á Kex hostel þann sama dag kl. 17.
Gengið verður með skáldum og lóðsum um Heima og Voga laugardaginn 11. maí í tilefni af 50 ára afmæli Sólheimasafns Borgarbókasafns
Kristín Guðrún Jónsdóttir veitti Íslensku þýðingaverðlaununum viðtöku á Gljúfrasteini í gær, þriðjudag.
Anna Heiða Pálsdóttir og Guðni Kolbeinsson hlutu þessi góðu barnabókaverðlaun fyrr í vikunni.
Miðstöð íslenskra bókmennta auglýsir eftir umsóknum um Nýræktarstyrki, hverra hlutverk er að hvetja til útgáfu nýs íslensks skáldskapar af öllum toga.
Baldur Óskarsson, skáld, lést sunnudaginn 14. apríl síðastliðinn.
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum heldur ráðstefnu um barnabókmenntir minnihlutahópa og munnlega hefð dagana 24. og 25. apríl.
Einar Már Jónsson kemur í Hannesarholt á mánudag til að lesa úr og spjalla um bók sína Örlagaborgin: brotabrot úr afrekasögu frjálshyggjunnar.
Uppheimar bjóða til ljóðakvölds næstkomandi laugardag til að fagna útgáfu þriggja nýrra ljóðabóka.
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum býður til bókamessu í Hannesarholti miðvikudaginn 10. apríl kl. 16-18.
María Antonia Mezquita Fernández heldur fyrirlestur um kanadísku skáldkonurnar Laurence, Munro og Atwood í Odda á hádegi þriðjudags 9. apríl.
Guðrún Harðardóttir, sagnfræðingur, fjallar um tilgátuhús og -teikningar sem sögulegan skáldskap í hádegisfyrirlestri Sagnfræðingafélags Íslands á þriðjudag.
Ný smásaga Friðriks Erlingssonar var frumflutt samtímis í öllum grunnskólum landsins og í Ríkisútvarpinu í morgun.
Þórarinn Eldjárn tók við Sögusteini, barnabókaverðlaunum IBBY á Íslandi, við hátíðlega athöfn á aðalsafni Borgarbókasafns í gær.
Í tilefni alþjóða barnabókadagsins hefur Rafbókavefurinn gert aðgengileg Ævintýri H.C. Andersens í þremur bindum.
Það verður heilmikil fjölskyldudagskrá í Hannesarholti á laugardag til að fagna áratugalangri tilveru Emils í Kattholti hér á landi.
Auður og Rannveig Jónsdætur segja frá ömmu sinni, Auði Sveinsdóttur, á Gljúfrasteini á fimmtudagskvöld.
Annemette Hejlsted heldur erindi um eðli og einkenni skáldskapar í Norræna húsinu á miðvikudag.
Hugvísindaþing Háskóla Íslands verður haldið dagana 15.-16. mars. Bókmenntaáhugafólk finnur þar e.t.v. eitthvað fyrir snúð sinn, snældu, viðvik og vott sætabrauð.
Stella útgáfa og meðgönguljóð fagna útgáfu ljóðabókarinnar Unglingar eftir Arngunni Árnadóttur í Bókabúð Máls og menningar á fimmtudag.
Ráðherra, rithöfundur, grunnskólakennarar og leynifélagi fjalla um framtíð barna- og unglingabóka á ráðstefnu í Gerðubergi laugardaginn 9. mars næstkomandi.
Kvöldið verður tileinkað Ingibjörgu Haraldsdóttur í Gunnarshúsi, húsi rithöfundasambandsins, þriðjudaginn 5. mars næstkomandi.
Steinunn Sigurðardóttir fjallar um tvær nýjustu skáldsögur sínar á Háskólatorgi fimmtudaginn 7. mars næstkomandi kl. 12.00.
Jón Björnsson og gestir hans spá í heilnæmi dalalífsins og siðspillinguna á mölinni í bókakaffi Menningarmiðstöðvarinnar Gerðubergs fimmtudagskvöldið 28. febrúar.
Bjarki heldur erindi um rím og ýmis álitaefni sem því tengjast á rannsóknarkvöldi Félags íslenskra fræða á miðvikudagskvöld í Hannesarholti.
Þorvaldur Þorsteinsson, listamaður og rithöfundur, lést á heimili sínu á laugardag.
Sigurður Pálsson, Gréta Kristín Ómarsdóttir og Bergrún Anna Hallsteinsdóttir koma fram á upplestrarkvöldi meðgönguljóða og Bókmenntaborgarinnar í Iðu við Tryggvagötu á þriðjudag.
Auður Jónsdóttir, Þórdís Gísladóttir og Steinunn Kristjánsdóttir eru handhafar Fjöruverðlaunanna – bókmenntaverðlauna kvenna í ár.
Bókmenntaverðlaun kvenna verða afhent við hátíðlega athöfn í Iðnó sunnudaginn 24. febrúar.
Danski rithöfundurinn Hanne-Vibeke Holst kemur fram á höfundakvöldi Norræna hússins á miðvikudagskvöld, og ræðir þar við þýðandann Halldóru Jónsdóttur.
Ljóðaslamm Borgarbókasafns var haldið í sjötta sinn á Safnanótt sem var, föstudaginn 8. febrúar. Hér er allt um það.
Eiríkur Örn Norðdahl og Gunnar F. Guðmundsson eru handhafar Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2012.
Bókmenntaborgin og Rúnatýr bjóða upp á hrollvekjandi dagskrá um vampírur og aðra óvætti í Bíó paradís á fimmtudag kl. 20.30.
Með lögum sem samþykkt voru á Alþingi í desember hefur Miðstöð íslenskra bókmennta nú verið stofnsett, en þar renna saman Bókmenntasjóður og Sögueyjan Ísland.
Vefurinn rithringur.is fagnar tíu ára afmæli í dag, fyrsta febrúar.
Kvæði Ómars Kajams, Rúbajat eða Ferhendur tjaldarans, verður til umfjöllunar á bókakaffi í Gerðubergi miðvikudagskvöldið 30. janúar.
Félag höfunda fræðirita og kennslugagna hefur kynnt tilnefningarnar tíu til viðurkenningar Hagþenkis. Kunngjört verður um úrslit í mars.
Birgitta Sif Jónsdóttir hlaut nýverið Dimmalimm – íslensku myndskreytiverðlaunin fyrir bókina Óliver.
Sú er yfirskrift fyrirlestraraðar Sagnfræðingafélags Íslands á vormisseri en þriðjudaginn 29. janúar ætlar Guðni Th. Jónasson að fjalla um Íslandssöguna sem gæti hafa gerst.
Málþing um varðveislu og skráningu gagna er tengjast Halldóri Laxness verður haldið í Norræna húsinu fimmtudaginn 31. janúar kl. 13.
Dimmalimm – íslensku myndskreytiverðlaunin verða afhent í Gerðubergi sunnudaginn 27. janúar. Um leið opnar þar sýning á myndskreytingum úr íslenskum barnabókum frá 2012.
„Afhjúpun“ Meðgönguljóða og Stellu heldur áfram göngu sinni í Iðu fimmtudagskvöldið 24. janúar, kl. 20. Fram koma Anton Helgi Jónsson, Ragnhildur Jóhannsdóttir og Elías Knörr.
Ljóðstafur Jóns úr Vör var afhentur í Salnum í Kópavogi í gær, Magnús Sigurðsson bar sigur úr býtum fyrir ljóðið Tunglsljós.
Laugardaginn 12. janúar kl. 15 opnar sýning á norrænum myndasögum í aðalsafni Borgarbókasafns við Tryggvagötu.
LoveStar Andra Snæs Magnasonar var nýlega tilnefnd til Philip K. Dick verðlaunanna.
Einar Kárason segir sögu Sturlu Sighvatssonar í Landnámssetrinu í Borgarnesi laugardaginn 12. janúar.
Frestur til að skila inn handritum í samkeppni um Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar rennur út 1. júní næstkomandi.
Það er nóg um að vera í miðbæ Reykjavíkur fyrir þá sem vilja heyra eitthvað fallegt.
Spyr.is býður spyrjendum að spyrja Auði Jónsdóttur spurninga í gegnum internetið.
Bóksalar og starfsfólk bókaverslana hafa nú birt lista sinn yfir bestu bækur ársins, í heilum níu liðum.
Tilnefningar til bókmenntaverðlauna kvenna 2013 voru kynntar á aðalsafni Borgarbókasafns nú fyrir skömmu.
Stefán Pálsson, Vilborg Davíðs, Huldar Breiðfjörð og Kristín Steinsdóttir lesa úr nýjum verkum á Gljúfrasteini á sunnudag kl. 16.
Einar Kárason fjallar um Skáld og tilvist Njáluhöfundar í ReykjavíkurAkademíunni á miðvikudag.
Tilkynnt verður um tilnefningar til bókmenntaverðlauna kvenna á Borgarbókasafni við Tryggvagötu miðvikudaginn næstkomandi.
Játningar mjólkurfernuskálds eftir Arndísi Þórarinsdóttur hefur verið tilnefnd til Norrænu barnabókaverðlaunanna 2013
Höfundar lesa úr nýútkomnum bókum sínum í MÍR-salnum, Hverfisgötu 105, laugardaginn 8. des. kl. 14.
Café lingua heldur áfram göngu sinni með ljóðalestri á aðalsafni Borgarbókasafns mánudaginn 3. desember frá kl. 17-18.
Tilnefningar til íslensku bókmenntaverðlaunanna voru gjörðar kunnar um helgina. Svo og íslensku þýðingaverðlaunanna.
Valeyrarvals Guðmundar Andra Thorssonar og Konan við 1000° eftir Hallgrím Helgason eru tilnefndar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2013.
Upplestraröð Gljúfrasteins heldur áfram, á sunnudag lesa þau Gyrðir, Gerður, Dagur og Sigurbjörg.
Glæpakvöld Hins íslenska glæpafélags verður haldið á Bar Gallery 46 fimmtudaginn 29. nóvember kl. 20.
Kristján Árnason mun fjalla um Passíusálma Hallgríms Péturssonar á rannsókarkvöldi Félags íslenskra fræða miðvikudaginn 28. nóv.
Bókakvöld RA, Sögufélags, Sagnfræðingafélags Íslands og Bókasafns Dagsbrúnar verður haldið nú á fimmtudag kl. 20.
Mánudaginn 26. nóvember fjallar Gerður Kristný um Ísland framtíðarinnar í málfundaröð Háskólans á Bifröst, Hverfisgötu.
Föstudag og laugardag 23.-24. nóvember stendur Íslenska furðusagnafélagið fyrir hátíð í Norræna húsinu þar sem furðusögur og skyldar bókmenntir verða í hávegum hafðar.
Nú á sunnudag hefst upplestrardagskrá á Gljúfrasteini, húsi skáldsins
Höfundar lesa úr nýútkomnum verkum á aðalsafni Borgarbókasafns miðvikudaginn 21. og sunnudaginn 25. nóv.
Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar voru í gær veitt Hannesi Péturssyni.
Ofan í fyrirliggjandi hamingju bókaflóðs og komandi -messu er dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur í dag, þá er ýmislegt að sjá og heyra.
Reykjavík Bókmenntaborg og Félag íslenskra bókaútgefenda standa fyrir bókamessu í Ráðhúsi Reykjavíkur annað árið í röð. Dagskráin er í tveimur orðum sagt mjög mikil.
Miðvikudagskvöldið 14. nóvember dekkar Bandalagið upp með nýjum þýðingum á Súfistanum.
Helgi Sverrisson, kvikmyndaleikstjóri, leiðir ritsmiðju fyrir áhugasama frá 21. nóvember nk. og fram í febrúar.
Dagný Kristjánsdóttir heldur erindi um Jójó Steinunnar Sigurðardóttur í fyrirlestrarsal Þjóðmenningarhússins á hádegi föstudagsins 9. nóv.
Ljóðasamkeppni Lista- og menningarráðs Kópavogs, Ljóðstafur Jóns úr Vör, er nú hafin í tólfta sinn. Skilafrestur rennur úr 14. desember.
Hrafnsauga þeirra Kjartans Yngva Björnssonar og Snæbjörns Brynjarssonar hlýtur Íslensku barnabókaverðlaunin í ár.
Guðmundur Andri Thorsson fjallar um Vögguvísu Elíasar Marar í Gunnarshúsi á fimmtudag.
Hjálmar Sveinsson leiðir göngu um slóðir skáldsögunnar Vögguvísu eftir Elías Mar miðvikudaginn 31. október kl. 17.
Félag um átjándu aldar fræði heldur málþing með þessari yfirskrift laugardaginn 3. nóvember næstkomandi.
Framhaldsskólanemar þreyja maraþonlestur í öllum útibúum Borgarbókasafns föstudaginn 26. október, í tilefni lestrarhátíðar í Reykjavík.
Hallgrímur Helgason kveður sér hljóðs á Skáldatali í Norræna húsinu nú á fimmtudag.
Málþing til heiðurs Elíasi Mar og Vögguvísu verður haldið á Þjóðarbókhlöðunni laugardaginn 27. október.
IBBY á Íslandi býður til bókakaffis á Súfistanum miðvikudagskvöldið 20. október, þar sem rætt verður um stöðu unglingabókarinnar.
Opið málþing um læsi í leikskólum verður haldið í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi miðvikudaginn 31. október næstkomandi.
Reynir Þór Eggertsson flytur fyrirlestur á rannsóknarkvöldi Reykjavíkur-Akademíunnar miðvikudagskvöldið 17. október.
Uppheimar bjóða í kaffi á sunnudaginn í tilefni af útkomu nýrrar ljóðabókar Bjarna Gunnarssonar.
Einar Örn Benediktsson afhjúpar bókmenntamerkingu til heiðurs Elíasi Mar í Aðalstræti og Hjálmar Sveinsson leiðir göngu um söguslóðir Vögguvísu.
Franski rithöfundurinn Michel Houellebecq mun lesa úr verkum sínum og spjalla við Friðrik Rafnsson á Kaffi Sólon fimmtudaginn 11. október næstkomandi.
Dagur Hjartarson hlaut í gær Bókmenntaverðalun Tómasar Guðmundssonar fyrir ljóðahandritið Þar sem vindarnir hvílast og fleiri einlæg ljóð.
Laugardaginn 6. október verður opið hús í Gunnarshúsi, Dyngjuvegi 8, frá kl. 14-16.
Bandalag þýðenda og túlka stendur fyrir málþingi um þýðingar á barnabókum í Iðnó sunnudaginn 30. sept.
Bókakaffi Menningar-miðstöðvarinnar Gerðubergs hefja göngu sína á ný miðvikdagskvöldið 26. september.
Sigríður Víðis Jónsdóttir ræðir tilurð bókarinnar Ríkisfang: ekkert í Norræna húsinu á hádegi fimmtudagsins 27. september.
Fimm bókmenntaverk af ýmsum toga hlutu Nýræktarstyrk Bókmenntasjóðs, en tilkynnt var um styrkhafana í Gunnarshúsi í gær.
Fimmtudaginn 20. september kl. 17 verður útgáfu síðustu ljóðabókar Jónasar Þorbjarnarsonar fagnað í Bókabúð Máls og menningar á Laugavegi.
Bókmenntaborgin stendur fyrir höfundakvöldi í Iðnó á mánudagskvöld 10. sept og málþing daginn eftir um verk mexíkóska rithöfundarins Elena Poniatowska
Keith Oatley, sálfræðingur og rithöfundur, heldur erindi um geðshræringar sem fyrirbæri og mannlegan veruleika, í Háskóla Íslands miðvikudaginn 5. sept.
Heimsbókmennta-dagskrá Bókmenntaborgarinnar Reykjavíkur hefst á rithöfundaspjalli Sjóns og Mazen Maarouf á aðalsafni Borgarbókasafns, næstkomandi fimmtudag.
Jussi Adler-Olsen verður á höfundakvöldi í Norræna húsinu fimmtudaginn 30. ágúst og les þar upp úr bók sinni Flöskuskeyti frá P.
Reykjavík Bókmenntaborg Unesco hefur skreytt veggi, gólf og gler fríhafnar Leifs Eiríkssonar með ljóðbrotum íslenskra skálda.
Bókmenntaborgin og Vinnuskóli Reykjavíkur standa nú að ljóðvæðingu gangstéttanna í borginni.
Aðgangur verður ókeypis að Gljúfrasteini, húsi skáldsins, á sunnudag í tilefni af íslenska safnadeginum. Þá verða haldnir ljóðatónleikar í húsinu með textum á þremur tungumálum.
Sigurjón Pálsson hlýtur glæpasagnaverðlaun Hins íslenska glæpafélags í ár fyrir skáldsöguna Klæki.
Kristín Marja Baldursdóttir var nú um helgina sæmd heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu, fyrir ritstörf sín og framlag til íslenskra bókmennta.
Skráning er hafin í ljóðaslammskeppni sem haldin verður á Grettishátíð 28. júlí nk., á Grettisbóli, Laugarbakka í Húnaþingi vestra.
Útgáfu sagnasveigsins Ást í meinum verður fagnað í verslun Eymundsson við Skólavörðustíg, fimmtudaginn 14. júní næstkomandi.
Tilkynnt verður um handhafa Blóðdropans, glæpasagnaverðlaun Hins íslenska glæpafélags, á aðalsafni Borgarbókasafns fimmtudaginn 21. júní næstkomandi.
Í Hafnarborg þriðjudaginn 12. júní kl. 20.00 mun James Elkins fjalla um ritun alþjóðlegrar og staðbundinnar listasögu og taka þátt í samræðum með gestum á vegum Listfræðafélags Íslands og Li...
Davíð Stefánsson, ljóðskáld og bókmenntafræðingur, heldur tvö námskeið í skapandi skrifum fyrir ungt fólk nú í lok júní og byrjun júlí.
Útkomu skáldsögunnar Það kemur alltaf nýr dagur verður fagnað í bókabúðinni Eymundsson í Austurstræti, í dag þriðjudag kl. 17.
Föstudaginn 25. maí kl. 20 lesa nokkrir erlendir og íslenskir höfundar úr verkum sínum á ensku, á Súfistanum í Bókabúð Máls og menningar. Dagskráin er í tengslum við ráðstefnuna Art in Trans...
Alþjóðlega ráðstefnan Art in Translation verður haldin 24.-26. maí í Norræna húsinu og Öskju. Þar verða ýmsir fletir á ritlist skoðaðir, bæði í fræðilegum erindum og listrænum gjörningum.
Vorvindaviðurkenningar IBBY á Íslandi voru veittar nú um helgina, meðal viðurkenningarhafanna þriggja voru höfundar Rökkurhæða-bókaflokksins, fyrir framlag til lestrarhvatningar.
Himnaríki og helvíti Jóns Kalmans Stefánssonar er tilnefnd til ítalskra bókmenntaverðlauna, og ekki í fyrsta sinn.
Afrakstur alþjóðlegs ljóðaspjalls, sem Reykjavík Bókmenntaborg og Mannréttindaskrifstofa Rvk. efndu til fyrir skömmu síðan, verður kynntur á upplestrardagskrá í Tjarnarbíói þann 12. maí.
Jylene Bydder heldur fyrirlestur fimmtudaginn 10. maí um breskar spæjarasögur frá lokum þarsíðustu aldar, og Rússana sem þar koma fyrir.
Bókasafn Garðabæjar stendur fyrir sögugöngu um Vífilstaði með Einari Má Guðmundssyni, sem fjallar þar um sögusvið skáldsögunnar Draumar á jörðu.
Miðvikudaginn 25. apríl kl. 20.00, í húsakynnum Reykjavíkur-Akademíunnar að Hringbraut 121, heldur Rósa Þorsteinsdóttir erindi um þýðingar á erlendum ævintýrum og íslenska sagnahefð.
Gyrðir Elíasson hlýtur Íslensku þýðingarverðlaunin í ár fyrir ljóðaþýðingarnar Tunglið braust inn í húsið.
Skemmtibók Sveppa og Dagbók Kidda klaufa: Ekki í herinn! hlutu Bókaverðlaun barnanna í ár, sem afhent voru nú á sumardaginn fyrsta.
Kvikmyndahátíðin „Laxness í lifandi myndum“ verður haldin í Bíó paradís dagana 23. til 28. apríl, í tilefni af 110 ára fæðingarafmæli skáldsins.
Bókaútgáfan Uppheimar býður til ljóðakvölds í húsakynnum sínum að kvöldi sumardagsins fyrsta, þar lesa höfundar og þýðendur úr nýútkomnum ljóðabókum.
Miðvikudaginn 18. apríl, í Þjóðmenningarhúsinu, heldur Jóhanna Katrín Friðriksdóttir erindi um handrit úr safni Árna Magnússonar. Þar með lýkur erindaröðinni „Góssið hans Árna“.
Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO hefur gert áttfætta goðsagnahestinn Sleipni að sérstökum félaga sínum. Í nafni Sleipnis mun Bókmenntaborgin taka þátt í verkefnum sem snúa að lestrarhvatningu ...
Finnski þjóðfræðingurinn Eija Stark flytur fyrirlestur um stéttir og vald í finnskum málsháttum og reynslusögum, í Háskóla Íslands mánudaginn 16. apríl kl. 17.
Fjörlegt málþing um bókmenntaþýðingar fer fram laugardaginn 14. apríl, þar fjalla meistaranemar í þýðingarfræðum um þýðingar verka af og á íslensku; barnabækur, krimma, fagurbókmenntir og ma...
Vert er að benda á útvarpsþátt í tveimur hlutum um skáldskap Jóns Kalmans Stefánssonar, en fyrri hluti hans verður á dagskrá Rásar eitt á páskadag, 8. apríl.
Smásagan Eins og í sögu, eftir Ragnheiði Gestsdóttur, verður flutt fyrir alla grunnskólanema landsins samtímis að morgni fimmtudagsins 29. mars.
Vilborg verður gestur í Bókakaffi Menningar-miðstöðvarinnar Gerðubergs miðvikudagskvöldið 28. mars kl. 20.
Norska skáldið Merethe Lindstrøm hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í ár fyrir skáldsöguna Dager i stillhetens historie.
Reykjavíkurborg auglýsir eftir handritum til að keppa um Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar. Skilafrestur er til 1. júní næstkomandi.
Einar Már Guðmundsson hlýtur Norrænu bókmenntaverðlaun Sænsku akademíunnar í ár.
Þjóðfræðistofa og Þjóðfræði við Háskóla Íslands standa fyrir fjórða árlega Húmorsþinginu nú á laugardag, 17. mars.
Nýlega komu út tvö ólík en ef til vill ekki alveg óáþekk verk eftir tvö ljóðskáld í leynum.
Vefsíðan Subbuskapur og sóðakarlar hefur verið stofnuð Druslubókum og doðröntum til heiðurs. Að fyrri síðunni standa karlar, að þeirri seinni konur.
Forlagið með nafnið illbeygjanlega heldur myndasögukeppni sína annað árið í röð, en skilafrestur er til 5. maí.
Hugvísindastofnun heldur sitt árlega þing í aðalbyggingu Háskóla Íslands föstudag og laugardag næstkomandi, þar kennir allra grasa.
Jón Yngvi Jóhannsson fjallar um samskipti Gunnars Gunnarssonar og Halldórs Laxness í fyrirlestri á Gljúfrasteini sunnudaginn 26. febrúar.
Málþing um bókmenntir frá Rómönsku Ameríku verður haldið í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins föstudaginn 2. mars.
Í bókakaffi Gerðubergs á morgun, miðvikudag, fjallar Guðmundur Andri Thorsson um nýjustu skáldsögu sína, Valeyrarvalsinn.
Daisy Neijmann og Gunnþórunn Guðmundsdóttir halda fyrirlestur um bókmenntalega tjáningu á tráma, minni og gleymsku í kjölfar félagslegrar kreppu, á Þjóðminjasafni Íslands á þriðjudag.
Oddný Eir Ævarsdóttir, Margrét Örnólfsdóttir og Birna Lárusdóttir hlutu Fjöruverðlaunin í ár, bókmenntaverðlaun kvenna, sem voru afhent í Iðnó í gær, sunnudag.
Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, verða afhent í sjötta sinn sunnudaginn kemur, þann 19. febrúar.
Nokkur nýleg fræðirit verða til umfjöllunar á bókafundi Reykjavíkur-Akademíunnar og Sögufélags í kvöld, á Þjóðskjalasafni Íslands.
Fimmta ljóðaslamm Borgarbókasafns var haldið á Safnanótt í Reykjavík föstudagskvöldið 10. febrúar s.l. Þar kepptu tíu atriði til sigurs og var dagskráin afar fjölbreytt og metnaðarfull. Viðf...
Bókaútgáfan Salka og Eymundsson standa fyrir ástarljóðasamkeppni nú í febrúar, í samstarfi við Bylgjuna.
Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO leitar að slagorði, sendið endilega inn tillögur.
Freyr Eyjólfsson tekur á móti Hallgrími Helgasyni á bókakvöldi á Súfistanum í kvöld, þeir ætla að spjalla um Konuna við 1000° ásamt fleiri gestum.
Tilkynnt hefur verið um þá höfunda fræðibóka sem tilnefndir eru til viðurkenningar Hagþenkis fyrir árið 2011
Guðrún Ingólfsdóttir heldur fyrirlestur um handritamenningu kvenna, á hádegi miðvikudags 2. febrúar í Öskju.
Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson fjallar um Rasmus Kristján Rask og bókstafinn „ð“ á rannsóknarkvöldi FÍF annað kvöld.
Guðrún Eva Mínervudóttir og Páll Björnsson hlutu Íslensku bókmenntaverðlaunin 2011, sem voru afhent seinni partinn í dag.
Fyrsta Bókakaffi ársins í Gerðubergi verður á dagskrá miðvikudagskvöldið 25. janúar kl. 20. Þar ætlar Ingvi Þór Kormáksson að fjalla um glæpasögur.
Á morgun, miðvikudaginn 25. janúar kl. 20, munu rithöfundarnir Einar Kárason og Gerður Kristný lesa upp úr verkum sínum og ræða þau á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn.
Laugardaginn 28. janúar næstkomandi verður haldið málþing í tilefni af 5 ára afmæli Miðstöðvar munnlegrar sögu.
Sigrún Sigurðardóttir heldur fyrirlestur á Þjóðminjasafni Íslands þriðjudaginn kemur, þann 24. janúar, um varðveislu og framleiðslu minninga í ljósmyndun.
Egill Viðarsson, þjóðfræðingur og tónlistarmaður, heldur hádegisfyrirlestur við tónlistardeild LHÍ í Sölvhóli á morgun, föstudaginn 20. janúar.
Laugardaginn næstkomandi, 21. janúar, verður haldin ráðstefna í Norræna húsinu undir yfirskriftinni ALVARA MÁLSINS – Bókaþjóð í ólestri. Þar verður fjallað um ískyggilegar niðurstöður rannsó...
Bókmenntasjóður auglýsir eftir umsóknum um Nýræktarstyrki en næsti umsóknarfrestur rennur út miðvikudaginn 6. apríl 2011.
Forlagið og Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka kalla eftir handritum í keppnina um Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir árið 2012.
Þjóðfræðingurinn Rósa Þorsteinsdóttir hefur sent frá sér bókina Sagan upp á hvern mann: Átta íslenskir sagnamenn og ævintýrin þeirra. Bókin er brautryðjendaverk í íslenskri þjóðsagnafræði en...
Menningarsjóður Hlaðvarpans úthlutar rúmum 7 milljónum króna til menningarmála kvenna. Úthlutunin fer fram í Iðnó þann 5. janúar 2012, kl. 17.00.
Stígum fastar á fjöl,
spörum ei vorn skó,
guð mun ráða hvar við dönsum næstu jól.
Guðni Elísson hefur sent frá sér tvö greinasöfn um menningu og bókmenntir. Önnur bókin fjallar um verk Steinunnar Sigurðardóttur og meðhöfundur hennar er Alda Björk Valdimarsdóttir.
Baldur Óskarsson, ljóðskáld, hlýtur verðlaun úr rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins í ár, en viðurkenningin er veitt árlega á afmæli Ríkisútvarpsins.
Fimmtudaginn 22. desember klukkan 17:00 les Kristín Ómarsdóttir úr nýútkominni bók sinni, Við tilheyrum sama myrkrinu - Af vináttu: Marilyn Monroe og Greta Garbo. Upplesturinn fer fram í Nýl...
Morr Music útgáfan í Þýskalandi gaf nýverið út bók með myndverkum Sindra Más Sigfússonar úr Seabear og Sin Fang og Örvars Þóreyjarsonar Smárasonar úr múm og FM Belfast. Bókin er appelsínugul...
Milli jóla og nýárs frumsýnir Þjóðleikhúsið leikrit byggt á bókum Áslaugar Jónsdóttur, Kalle Güettler og Rakel Helmsdal um stóra skrímslið og litla skrímslið.
Starfsfólk bókaverslana velur árlega þær bækur sem því þykir standa upp úr útgáfu ársins í sjö flokkum. Valið fer fram með kosningu og voru niðurstöðurnar þetta árið kynntar í bókmenntaþætti...
Dómnefndir Fjöruverðlaunanna kynntu tilnefningar sínar í Borgarbókasafninu við Tryggvagötu síðdegis í gær, miðvikudag.
Í kvöld, miðvikudaginn 14. desember, stendur Stína fyrir upplestrarkvöldi í Nýló í tilefni útkomu nýs heftis tímaritsins. Þar lesa nokkrir af þeim höfundum sem eiga efni í ritinu.
Miðvikudaginn, 14. desember kl. 12.15, flytur Sverrir Tómasson fimmta hádegiserindið í röðinni Góssið hans Árna. Erindið nefnist: ,,Bið fyrir mér dándikall". Nikulás saga og Nikulás tíðir í...
Miðvikudaginn 14. desember kemur í ljós hvaða bækur eru tilnefndar til Fjöruverðlaunanna, bókmenntaverðlauna kvenna, í ár. Tilnefningarnar verða tilkynntar í Borgarbókasafninu við Tryggvagöt...
Bókmenntakynning Menningar- og friðarsamtakanna MFÍK verður haldin laugardaginn 10. desember næstkomandi klukkan 14.00, í MÍR salnum, Hverfisgötu 105.
Fimmtudagskvöldið 8. desember, kl. 20:00-22:00 verður kynning á nýjum bókum Sögufélags og Hins íslenska bókmenntafélags í húsi Sögufélags við Fischersund í Reykjavík.
Laugardaginn 10. desember verður dagskrá í Norræna húsinu í tilefni afhendingar Nóbelsverðlaunanna í bókmenntum og verður meðal annars sýnt beint frá verðlaunaafhendingunni. Dagskráin hefst ...
Félag áhugamanna um heimspeki stendur fyrir kynningu á nýútkomnum bókum er tengjast heimspeki með einum eða öðrum hætti. Dagskráin hefst kl. 20.30 fimmtudaginn 8. desember á Kaffi Haïti, Gei...
Fimmtudaginn 8. desember kl. 16, í Odda, stofu 101 flytur Klaus Johan Myrvoll erindi undir yfirskriftinni Orti Egill Sonatorrek?
Rafræn útgáfa Listamannaþinga Gerðubergs frá og með árinu 2003 er nú að mestu fáanleg á vef Menningarmiðstöðvarinnar.
Nú er ljóst hvaða bækur eru tilnefndar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2012. Verðlaunahafinn verður svo valinn á fundi dómnefndar vorið 2012. Íslensku bækurnar sem eru tilnefndar eru ...
Fimmtudaginn 1. desember, kl. 16, verður haldin málstofa um ljóð Gunnars Gunnarssonar rithöfundar í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöðu.
Hið íslenska glæpafélag og Gallery Bar 46 standa fyrir árlegu glæpakvöldi Hins íslenska glæpafélags á Gallery-bar 46, Hverfisgötu 46, fimmtudaginn 1. desember, kl. 20:30.
Oddur Björnsson, leikskáld og myndlistamaður með meiru, lést mánudaginn 21. nóvember síðastliðinn.
Norræna húsið og Hið íslenska bókmenntafélag bjóða til höfundakvölds með Herman Lindqvist fimmtudagskvöldið 24. nóvember klukkan 20:00.
Sölvi Sveinsson flytur afmælisfyrirlestur Bókasafns Seltjarnerness í ár, og það strax á morgun, þriðjudaginn 22. nóvember klukkan 17.
Rafbókaútgáfan lestu.is stendur fyrir sýningu á þýsku kvikmyndinni Du darfst nicht länger schweigen í Bíó paradís, sunnudaginn 20. nóvember kl. 20:00.
Undir yfirskriftinni Kellíngabækur verða kynnt ný verk kvenhöfunda af margvíslegum toga – skáldsögur, fræðibækur, ljóðabækur, ævisögur og barnabækur.
Dagur íslenskrar tungu er miðvikudaginn 16. nóvember, á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar. Þá verður ýmislegt um að vera á útibúum Borgarbókasafns.
Helgina 12. - 13. nóvember verður spennandi dagskrá í Iðnó og Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem bókaflóra ársins verður kynnt á fjölbreyttan hátt. Í Ráðhúsin verða útgefendur með kynningarbása og ...
Málræktarþing Íslenskrar málnefndar og Mjólkursamsölunnar, Æska í ólestri – mál okkar allra, verður haldið laugardaginn 12. nóvember í Skriðu, sal Menntavísindasviðs HÍ við Stakkahlíð kl. 11...
Dagbók vesturfara eftir Jóhann Magnús Bjarnason (1866-1945) er nú komin út hjá Lestu.is, en þetta mun vera í fyrsta sinn sem bókin er gefin út. Útgáfu hennar verður fagnað í versluninni Eymu...
Gunnar Harðarson flytur fyrirlestur um skipulagsrökin í formála Snorra Eddu, “The Design Argument in the Prologue of the Snorra Edda”, í stofu 423 í Árnagarði fimmtudaginn 10. nóvember 2011 ...
Miðvikudaginn 9. nóvember, kl. 12.15-12.45, heldur Yelena Sesselja Helgadóttir fyrirlestur undir yfirskriftinni Alþýðleg fornfræði á vegum Jóns Sigurðssonar. Erindið er hluti af fyrirlestrar...
Laugardaginn 5. nóvember kl. 13:30 - 16:00 verður haldið ritþing í Gerðubergi og er það að þessu sinni tileinkað Vigdísi Grímsdóttur. Aðgangur er ókeypis og stjórnandi er Jórunn Sigurðardótt...
Sjón ræðir um tilurð Rökkurbýsna í stofu 102 á Háskólatorgi fimmtudaginn 3. nóvember kl. 12 - 13. Erindið er hluti af fyrirlestraröðinni Hvernig verður bók til? sem ritlist við Íslensku og m...
Bókin Íslenskir fuglar teiknaðir af Benedikt Gröndal er komin út hjá Crymogeu.
Menningar- og þróunarráð Kópavogs efnir í ellefta sinn til árlegrar ljóðasamkeppni undir heitinu Ljóðstafur Jóns úr Vör. Öllum skáldum er velkomið að senda ljóð í keppnina en skilafrestur re...
Alþjóðlega átakið National Novel Writing Month stendur yfir í nóvember, öllum er frjálst að taka þátt. Bókasafn Kópavogs í Hamraborg veitir upplýsingar og heldur opna fundi fyrir þátttakendu...
Sunnudaginn 30. október heldur Benedikt Hjartarson erindi á Gljúfrasteini - húsi skáldsins - um Halldór Laxness sem samferðamann evrópsku framúrstefnunnar.
Miðvikudaginn 26. október flytur Guðrún Ása Grímsdóttir annað erindið í röðinni Góssið hans Árna. Guðrún Ása mun fjalla um skjalabækur sem Árni Magnússon fékk léðar í Holti í Önundarfirði su...
Ásta Kristín Benediktsdóttir ætlar að fjalla um frásagnaraðferðir Jakobínu Sigurðardóttur á rannsóknarkvöldi Félags íslenskra fræða næstkomandi miðvikudagskvöld.
Útgáfu nýrrar skáldsögu Vigdísar Grímsdóttur verður fagnað á aðalsafni Borgarbókasafns við Tryggvagötu, þriðjudaginn 25. október kl. 17.
Norska sendiráðið og Bókmennta- og listfræðastofnun Háskóla Íslands boða til málþings um sagnaskáldið Kristmann Guðmundsson (1901-1983) í Norræna húsinu sunnudaginn 23. október n.k. kl. 13.3...
Pétur Gunnarsson ríður á vaðið í nýrri fyrirlestraröð á vegum ritlistar við Háskóla Íslands og Bókmennta- og listfræðastofnunar, á hádegi fimmtudags 20. október.
Haukur Ingvarsson fagnar útkomu fyrstu skáldsögu sinnar í Bókabúð Máls og menningar fimmtudaginn næstkomandi klukkan 17.
Næsta heimspekikaffi Gerðubergs er á dagskrá miðvikudaginn 19. október klukkan 20. Þá mun Gunnar Hersveinn leiða umræður um samband hamingju og nægjusemi. Gestur kvöldsins verður Anna Valdim...
Jón Gnarr, borgarstjóri, hefur undirritað samkomulag þess efnis að Reykjavík verði hluti af alþjóðlegum samtökum skjólborga rithöfunda, eða ICORN.
Ófeigur Sigurðsson er meðal handhafa Bókmenntaverðlauna Evrópusambandsins árið 2011. Tilkynnt var um verðlaunin á Bókamessunni í Frankfurt í gær.
Sunnlenska bókakaffið á Selfossi fagnar fimm ára afmæli og tvöfaldri útgáfu nú á laugardag.
Um helgina opnaði í Norræna húsinu sýning á myndum Kristínar Rögnu Gunnarsdóttur úr barnabókinni Hávamál, sem Þórarinn Eldjárn skrifar.
Sunnudaginn 9. október kl. 15 er sögustund á bókatorgi Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15. Þá ætlar Ragnheiður Þóra Grímsdóttir sagnaþula að segja börnum og fullorðnum sögur.
Ragnheiður hefu...
Sjöunda Alþjóðlega ljóðahátíðin verður haldin í Reykjavík dagana 6.-8. október 2011. Boðið verður uppá ljóðaupplestra og pallborðsumræður sem bæði innlend og erlend skáld taka þátt, ásamt ým...
Nú fyrir stundu var tilkynnt að sænska ljóðskáldið Tomas Tranströmer hljóti Nóbelsverðlaunin í bókmenntum 2011. Í röstuðningi segir að það sé "vegna þess að hann veiti okkur ferska sýn á ver...
Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr, veitti í dag í Höfða Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2011. Besta ljóðahandritið að mati dómnefndar var Í klóm dalalæðunnar eftir Sindra F...
Á síðunni myndasögur.is má taka þátt í Tinnaleik sem myndasögutímaritið Neo Blek stendur fyrir.
Friðrik Rafnsson spjallar um skáldkonuna Irene Nemirovsky í hádegisspjalli í aðalsafni Borgarbókasafns fimmtudaginn 29. september. Erindið hefst kl. 12 og lýkur um hálfri klukkustund síðar.
Íslensku barnabókaverðlaunin voru veitt í gær, þriðjudaginn 27. september, við hátíðlega athöfn í Rimaskóla. Bryndís Björgvinsdóttir hlaut verðlaunin fyrir bókina Flugan sem stöðvaði stríðið...
Miðvikudaginn 28. september mun Marín G. Hrafnsdóttir, bókmenntafræðingur og langömmubarn skáldkonunnar Guðrúnar frá Lundi, segja frá lífi og list ömmu sinnar. Spjallið kallar hún Mátti kerl...
Í Reykholti, næstkomandi þriðjudag, heldur Viðar Pálsson fyrirlestur um einstaklinginn, sköpunargáfuna og listaverkið í söguskoðun ,,íslenska skólans" um og fyrir miðja síðustu öld.
Jón Atli Jónasson hlaut í gær fyrstu verðlaun í Gaddakylfunni, glæpasagnakeppni Hins íslenska glæpafélags og DV.
100.000 poets for change er ljóðaviðburður sem fram fer í 400 borgum um heim allan þann 24. september næstkomandi, m.a. í bókabúðinni Útúrdúr við Hverfisgötu. Þennan dag ætla skáld um víða v...
Úrslit í smásagnasamkeppni Hins íslenska glæpafélags og DV verða tilkynnt og sjálf Gaddakylfan afhent miðvikudaginn 21. september klukkan 17:00 á Volcano House Tryggvagötu 1.
Í tengslum við ritþing Vigdísar Grímsdóttur sem verður í Gerðubergi, 5. nóvember, verður haldið bókmenntanámskeið um verk hennar undir yfirskriftinni Sögur af stúlkum.
Síðustu helgina í september verður haldin ljóðahátíð í Eyjafirði. Á dagskrá er ljóðaganga í Grundarskógi og ljóðakvöld með þátttöku sex skálda.
Jón Kalman Stefánsson hlýtur í ár sænsku bókmenntaverðlaunin sem kennd eru við rithöfundinn Per Olov Enquist.
Myndasöguhöfundurinn og leikskáldið Hugleikur Dagsson verður með uppistand á Café Rosenberg, Klapparstíg 27, kl. 21.00, miðvikudagskvöldið 14. september.
Gerður Kristný, rithöfundur, flytur opinberan fyrirlestur í Norræna húsinu, miðvikudaginn 14. september nk., kl. 17.00, á fæðingardegi dr. Sigurðar Nordals. Fyrirlesturinn nefnist: „Guðir og...
Laugardagskvöldið 10. september kl. 20 verður lagt af stað í bókmenntagöngu með rithöfundum og söngvaskáldi frá aðalsafni Borgarbókasafns í Tryggvagötu 15.
Fríar ritsmiðjur með Þorgrími Þráinssyni, Kristínu Helgu Gunnarsdóttur, Andra Snæ Magnasyni, Þórarni Leifssyni og Kristjönu Friðbjörnsdóttur í fimm söfnum Borgarbókasafns í dag kl. 13:30.
Hátíðin verður sett í Norræna húsinu í dag, miðvikudaginn 7. september og um leið verður Reykjavík Bókmenntborg UNESCO formlega hleypt af stokkunum.
Miðvikudaginn 7. september kl. 17:00 verður sýning um ævi og ritverk fransk-úkraínsku skáldkonunnar Irène Némirovsky opnuð í Borgarbókasafni. Hér má sjá myndband um Némirovsky eftir Söruh Jo...
Föstudagskvöldið 2. september kl. 21 heldur Eyþór Árnason bókmenntakvöld í Héðinsminni í Skagafirði. Tilefnið er nýútkomin ljóðabók hans, Svo ég komi aftur að ágústmyrkrinu.
Smásagnasafn Gyrðis Elíassonar, Milli trjánna, er komið út á dönsku en fyrir það hlýtur Gyrðir Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í ár. Eric Skyum-Nielsen þýddi safnið á dönsku.
Ragnhildur Jóhanns sýnir nú ný verk í bland við eldri á sýningu í verslun og veitingastofu Þjóðmenningarhússins. Verkin eru unnin úr gömlum textum og ljóðabókum. Í þeim fléttast saman myndli...
Japanskar bókmenntir verða meðal efnis á dagskrá Borgarbókasafns á Menningarnótt. Haukur Ingvarsson mun fjalla um og lesa splúnkunýjar þýðingar Kristínar Ingvarsdóttur á örsögum eftir Kawaba...
Reykjavíkurborg hefur verið útnefnd ein af Bókmenntaborgum UNESCO. Tilkynning þess efnis barst borgarstjóra og Menningar- og ferðamálasviði borgarinnar í gær, þann 4. ágúst 2011. Í útnefning...
Fimmtudagskvöldið 4. ágúst kl. 20 býður Borgarbókasafn Reykjavíkur til kvöldgöngu þar sem Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur rekur slóð bókmennta í miðbænum og bendir á mismunandi birti...
Málþing um Guðrúnu frá Lundi og önnur skagfirsk sagnaskáld verður haldið í Ketilási í Fljótum laugardaginn 13. ágúst kl. 13.30. Guðrún Árnadóttir skáldkona kenndi sig ávallt við fæðingarbæ s...
Laugardaginn 23. júlí kl. 16 fjallar Aðalheiður Guðmundsdóttir um ævintýri sem sögð hafa verið við Breiðafjörð og í Dölum – en í erindinu fjallar hún ekki síst um fólkið sem sagði þau. Erind...
Kammerhópurinn Kvísl býður til leikhústónleika fimmtudaginn 21. júlí þar sem hin sígilda saga Muggs, Dimmalimm, verður sögð við tónlist Atla Heimis Sveinssonar.
Ormstunga hefur gefið út bókina Grettir sterki með 16 brotum úr Grettis sögu og jafnmörgum teikningum Halldórs Péturssonar. Bókin er á íslensku, ensku og þýsku.
Sýningin Læsi opnar í Nýlistasafninu laugardaginn 16. júlí kl. 17. Þar er teflt saman listaverkum byggðum á samspili texta, forma og rýmis, en sýnd verða verk eftir 18 listamenn sem kanna te...
Bandaríski fræðimaðurinn Fred Wood flytur fyrirlestur á Gljúfrasteini fimmtudaginn 14. júlí kl. 20. Þar ræðir hann um tengsl Halldórs Laxness og hinna síðari daga heilögu.
Fimmtudagskvöldið 14. júlí kl. 20 verður bókmenntaganga fyrir alla fjölskylduna í miðbænum. Rithöfundarnir Þórarinn Leifsson og Margrét Örnólfsdóttir mæta og einnig verða bækur fleiri vinsæl...
Borgarbókasafnið stendur fyrir miðborgargöngum á ensku kl. 17 alla fimmtudaga í júlí og ágúst. Markmiðið er að kynna íslenskar bókmenntir fyrir ferðamönnum og öðrum áhugasömum á lifandi og s...
Útúrdúr kynnir útgáfuverk sín á höfundakvöldi í Norræna húsinu fimmtudaginn 7. júlí kl. 20. Bók Ásmundar Ásmundssonar, Kæru vinir og TSYOL Haraldar Jónssonar verða til umfjöllunar.
Queich-Verlag í Þýskalandi hefur gefið út safn ljóða eftir Þorstein frá Hamri í þýðingu Gert Kreutzer, prófessors í norrænum fræðum. Bókin heitir Jarðarteikn – Erdzeichen, og í henni eru 38...
Útvarpsleikritið Djúpið eftir Jón Atla Jónasson, sem hlaut bæði Grímuna í ár og Norrænu útvarpsleikhúsverðlaunin, verður endurflutt á Rás 1 sunnudaginn 26. júní kl. 14.
Senn fer að líða að árlegum bókmenntagöngum Borgarbókasafns fyrir erlenda ferðamenn, en fyrsta ganga sumarsins verður fimmtudaginn 7. júlí kl. 17. Gengið verður á hverjum fimmtudegi á sama t...
Íslensku glæpasagnaverðlaunin, Blóðdropinn, voru afhent í aðalsafni Borgarbókasafns nú rétt í þessu. Þau féllu í skaut Yrsu Sigurðardóttur, fyrir spennu- og hryllingssöguna Ég man þig.
Blóðdropinn, glæpasagnaverðlaun Hins íslenska glæpafélags, verður afhentur á þriðjudaginn kemur, þann 21. í aðalsafni Borgabókasafns í Grófinni. Herlegheitin hefjast klukkan 17 og boðið verð...
Borgarbókasafnið kemur við tvisvar við sögu í nýjasta hefti Spássíunnar, auk þess sem vísindaskáldskap er gert hátt undir höfði.
Allir krakkar geta tekið þátt í sumarlestri í söfnum Borgarbókasafns í júní, júlí og ágúst. Í lok sumars verða nöfn nokkurra þátttakenda dregin út og börnin fá vinning.
Í sumar býðst unglingum á aldrinum 12 - 15 ára að taka þátt í stuttum námskeiðum í skapandi skrifum. Leiðbeinandi er Davíð Stefánsson og gestakennari Þorvaldur Þorsteinsson. Fyrsta námskeiði...
Einar Már Guðmundsson kynnir nýútkomna bók sína, Bankastræti núll, í Jónshúsi fimmtudaginn 16. júní kl. 20.
Bókmenntahátíð í Reykjavík verður sett í tíunda sinn miðvikudaginn 7. september og mun standa til sunnudagsins 11. september. Þema hátíðarinnar er norrænn sagnaarfur, lifandi samtímabókmennt...
Lokabindið í þríleik Ólafs Jóhanns Sigurðssonar um Pál blaðamann, Drekar og smáfuglar, er komið út í nýrri kiljuútgáfu, en bókin kom upphaflega út árið 1983. Fyrri bindin tvö voru endurútgef...
Fimmtudaginn 9. júní kl. 20 verður norski rithöfundurinn Beate Grimsrud gestur á Höfundakvöldi Norræna hússins. Skáldsaga Beate, En dåre fri, var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandar...
Í kvöld, miðvikudagskvöldið 1. júní, verður hin sænska Kajsa Ingemarsson gestur á Höfundakvöldi Norræna hússins.
Póstur sem sendur hefur verið á bokmenntir@reykjavik.is hefur ekki borist til okkar hér á vefnum undanfarnar þrjár vikur.
Thors Vilhjálmssonar verður minnst með sérstakri sýningu á fyrsta hluta 'Draumsins um veginn' í Kaupmannahöfn miðvikudagskvöldið næstkomandi.
Góðir Íslendingar Huldars Breiðfjörð er komin út í þýskri þýðingu hjá forlaginu Aufbau.
Upp hefur komið bilun í hluta vefjarins og því birtast undirsíður höfunda ekki sem skyldi. Unnið er að viðgerð.
Á morgun, fimmtudaginn 26. maí, klukkan 17:30 verður útgáfuhóf nýrrar bókar Einars Más Guðmundssonar haldið í Eymundsson við Skólavörðustíg.
Vetrarsól Auðar Jónsdóttur er komin út í þýskri þýðingu og ber þar titilinn Jenseits des Meeres liegt die ganze Welt.
Naja Marie Aidt, höfundur bókarinnar Bavíani, spjallar við Ingunni Ásdísardóttur og les úr verkinu Norræna húsinu í kvöld, fimmtudaginn 19. maí kl. 20.
Út er komið smásagnasafn með íslenskum hrollvekjum eftir Þorstein Mar. Þetta er fyrsta bók höfundar, en bókin hefur að geyma ellefu stuttar hrollvekjur, sem spanna allt frá þjóðsagnakenndum ...
Bókaútgáfan Opna hefur gefið út bókina JÓR! Hestar í íslenskri myndlist, eftir Aðalstein Ingólfsson listfræðing. Hafþór Yngvason, forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur, skrifar inngang. Útgáf...
Sunnudaginn 15. maí voru í Gunnarshúsi afhentar Vorvindaviðurkenningar IBBY á Íslandi við hátíðlega athöfn.
Bókaverðlaun barnanna voru afhent í níunda sinn á fjölskyldudagskrá í Grófarhúsi sunnudaginn 15. maí. Þeir Þorgrímur Þráinsson og Helgi Jónsson hlutu verðlaunin að þessu sinni, sá fyrrnefndi...
Út er komið ritgerðasafnið Ást er þjófnaður eftir Eirík Örn Norðdahl, en þar er fjallað um höfundarétt, þjófnað og framtíðina í ótal örlitlum hlutum. Bókin er bæði gefin út sem rafbók og í p...
Helgina 28. - 29. maí verður haldið málþing um bókmenntir á Þórbergssetri í Suðursveit. Þingið er á vegum Þórbergsseturs, Háskólaseturs Hornafjarðar og Ferðamáladeildar Háskólans á Hólum.
Bókaverðlaun barnanna 2011 verða afhent sunnudaginn 15. maí kl. 15 í aðalsafni Borgarbókasafns í Tryggvagötu. Jón Víðis töframaður afhendir verðlaunin og er hann þekktur fyrir allt annað en ...
Þriðjudagskvöldið 10. maí kl. 20:30 verður ljóðadagskrá á Bakkusi í tilefni útgáfu bókar með ljóðum tíu íslenskra skálda á dönsku. Bókin heitir Ny islandsk poesi og Arena gefur út.
Tilkynnt var um úrslit í myndasögusamkeppni Borgarbókasafnsins og Myndlistaskólans í Reykjavík sunnudaginn síðastliðinn, og um leið opnuð sýning á sögunum
Þóra Arnórsdóttir ræðir við sænska rithöfundinn Evu Gabrielsson, ekkju Stig Larssons, á höfundakvöldi í Norræna húsinu fimmtudaginn 12. maí kl. 20.
Þrjár bækur eftir Steinunni Sigurðardóttur eru nýkomnar út í Frakklandi, ljóðabókin Ástarljóð af landi, skáldsagan Hundrað dyr í golunni og loks endurútgáfa Sólskinshestsins.
Sunnudaginn 8. maí, kl. 14 verður myndasögusýningin Ofurhetjan opnuð á Reykjavíkurtorgi í aðalsafni Borgarbókasafns Reykjavíkur, Tryggvagötu 15. Jafnframt verða tilkynnt úrslit í myndasögusa...
Útgáfu skáldsögunnar Sláttur, fyrstu bókar Hildar Knútsdóttur, verður fagnað í Eymundsson á Skólavörðustíg fimmtudaginn 5. maí kl. 17:30.
Erlingur E. Halldórsson hlaut Íslensku þýðingaverðlaunin 2011 fyrir þýðingu sína á Gleðileiknum guðdómlega eftir Dante Alighieri. Forseti Íslands afhenti honum verðlaunin við hátíðlega athöf...
Ego útgáfa hefur gefið út ljóðabókina Undir tjaldhimni veruleikans eftir Bjarna Bernharð.
Laugardaginn 30. apríl kl. 14 spjalla þeir Hermann Stefánsson og Sindri Freysson um sýninguna (EI)land í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi.
Útgáfu ljóðabókar Kristínar Svövu Tómasdóttur, Skrælingjasýningin, verður fagnað með samdrykkju í Eymundsson við Skólavörðustíg klukkan 17 í dag, föstudaginn 29. apríl.
Fimmtudaginn 28. apríl kl. 14 opnar sýning á sögum og myndum eftir börn og unglinga á bókatorgi aðalsafns Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15. Sýningin er afrakstur samstarfs leik- og grunnskóla...
Föstudaginn 29. apríl kl. 12:10 - 13:30 verður málstofa í ReykjavíkurAkademínunni við Hringbraut þar sem rætt verður um sæmdarréttinn í íslenskum höfundaréttarlögum og menningarlegu samhengi...
Fimmtudaginn 28. apríl kl. 20 flytur Ármann Jakobsson erindi á rannsóknarkvöldi Félags íslenskra fræða. Erindið nefnist Oflátungur á erlendri grundu: Jórsalaferð Sigurðar konungs sem sjónars...
Kristjana Friðbjörnsdóttir og Böðvar Guðmundsson hlutu Barnabókaverðlaun menntaráðs Reykjavíkurborgar fyrir bækurnar Flateyjarbréfin og Elskar mig - elskar mig ekki.
Ný ljóðabók eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur kemur út nú í páskavikunni. Hún heitir Skrælingjasýningin og er þetta önnur ljóðabók skáldkonunnar.
Útvarpsleikrit eftir Kristínu Ómarsdóttur verður frumflutt í Útvarpsleikhúsinu á annan í páskum, mánudaginn 25. apríl kl. 14.
Í dag kl. 17 verður útgáfugleði í Bókasal Þjóðmenningarhússins þar sem þýðingum Einars Thoroddsens á ljóðum eftir Heine verður fagnað.
Laugardaginn 16. apríl sýnir Möguleikhúsið nýtt íslenskt barnaleikrit í Gerðubergi, sem byggt er á gömlum íslenskum munnmælasögum og kveðskap. Sýningin hefst klukkan 16.
Mánudaginn 18. apríl halda nemendur í miðaldafræðum ráðstefnu í Háskóla Íslands þar sem þeir kynna rannsóknir sínar.
Á fyrsta höfundakvöld vorsins fimmtudaginn 14. apríl verður helgað grænlenskum bókmenntum en þá ræði Jórunn Sigurðardóttir við Kristian Olsen Aaju og Mariane Petersen.
Finnsk-sænski rithöfundurinn Christer Kihlman heldur fyrirlesturinn Ett 'samhällskritiskt' författarskap í Norræna húsinu miðvikdaginn 13. aprìl kl. 19.
Tilkynnt var í Osló fyrir stundu að Gyrðir Elíasson hljóti Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir smásagnasafn sitt, Milli tránna.
Fimmtudaginn 14. apríl halda bókasöfn landsins í fyrsta sinn upp á Bókasafnsdaginn, í samvinnu við Upplýsingu, félag bókasafns- og upplýsingafræða. Tilgangurinn er að vekja athygli á mikilvæ...
Ævintýri fyrir gítartríó og sögumann verður flutt í Þjóðmenningarhúsinu sunnudaginn 10. apríl kl. 16. Á dagskránni eru íslensk þjóðlög en Svanlaug Jóhannsdóttir samdi söguþráð sem tengir lög...
Föstudaginn 8. apríl kl. 10-16 verður árlegt málþing meistaranema í þýðingafræði við Háskóla Íslands haldið í Aðalbyggingu skólans, stofu 220.
Fimmtudaginn 7. apríl heldur Benedikt Hjartarson hádegiserindi um framúrstefnu, dulspeki og klám í Háskóla Islands. Fyrirlesturinn fer fram í stofu 132 í Öskju.
Fylgjast má með leshring á vefnum þar sem rætt er um bækurnar sem tilnefndar eru til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í ár.