Eyðibýli

Nökkvi Elíasson og Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson.

“Inn í rökkursögu”

Í ljóðinu “Á ystu strönd” lýsir ljóðmælandi því að hingað hafi hann aðeins komið “í ljósum draumi” og “á ystu strönd” hafi staðið “yfirgefið hús / limfagurt lauftré,” hinum megin við fjörðin eru “skóglaus skýjalöndin.” Þessari ferð er heitið “inn í rökkursögu” en þar ber ævintýratréð þann sjaldgæfa ávöxt, “einfalda, dýrmæta kyrrð.”
Það er einmitt slík einföld kyrrð sem hvílir yfir bók þeirra Aðalsteins og Nökkva um eyðibýlin. Myndir Nökkva af yfirgefnum býlunum eru ýmist hrikalegar í auðn sinni og eyðileggingu eða fínlegar og næstum ljúfar, eins og myndin sem á við ljóðið “Á ystu strönd.” Myndin er alveg eins og ljóðið, í forgrunni kúrir lítið yfirgefið hús og við hliðina á því er einmana tré. Í bakgrunni er vatn - fjörður - og skýin hylja landið hinum megin að hluta.

Annars eru ljóðin alls ekki alltaf lýsingar á myndunum, mörg þeirra eru fremur eins og stef, minningarbrot, eða sagnabrot, vangaveltur um aðskilnað og söknuð. Mörg eru tregafull, en myndirnar eru undartekningarlaust hlaðnar trega og sorg, þrátt fyrir að vera jafnhliða einskonar óður til landsins og þá sérstaklega skýjafarsins.  Eftir að ég hafði skoðað myndirnar með tilliti til húsanna fór ég nefninlega að taka eftir því hvað skýjin leika stórt hlutverk í stemningunni. Þannig getur æsingslegt og búttað skýjafar gefið eyðibýlunum margradda undirtóna, eins og í myndunum af Aflstöðum í Haukadal og Gamla bænum á Skógum. Þar heitir ljóðið líka “Með dásamlegum trega.”
Það er einnig dásamlegur tregi í ljóðinu “Skínandi ævintýri,” en þar segir frá fundum tveggja elskenda sem taka á sig þjóðsagnabúning, sömuleiðis er krúsaleg kómík í ljóðinu um þarfasta þjóninn, sem þegar að er gáð, reynist bíll en ekki hross. Sá þarfi þjónn birtist okkur hins vegar í öðru ljóði, “Hlutskipti”, en þar segir frá einhyrningum sem “leynast alhvítir / í ævintýrum” meðan “gamli Jarpur” er kominn inn fyrir túngarðinn að “naga allt / niður í rót.”

Samspil mynda og ljóða er því á allan hátt einstaklega vel heppnað, mynd og texti mynda órjúfanlega fallega heild. Myndirnar lifna með ljóðunum og taka á sig hin fjölbreytilegustu blæbrigði, meðan ljóðin eflast og stillast innanum myndir af rökkursögu íslenskra sveita.

Úlfhildur Dagsdóttir, júní 2005


Til baka



Senda Senda Prenta Prenta Senda á Facebook

Ég fór að sjá þessa líka fínu hrollvekju í gær, Resident Evil: Apocalypse, og gladdist sérlega yfir stórum þætti kvenhetja þar, en mér hefur alltaf fundist hrollvekjan vera eitthvað svona meira fyrir okkur konur og aldrei skilið hversvegna fólk álítur þetta vera strákaleik. ...
Þessi pistill átti upphaflega að heita "Dúkkuheimili", því mér eru minnistæðastar tvær senur úr þessum tveimur sjálfsævisögulegu bókum, sem báðar komu út í bókaflokknum "Svarta línan" hjá Bjarti. ...
Kóralína | 07.04.2010
Ég ætlaði að vera búin að skrifa pistil um þessa bók fyrir lifandi löngu. Ekki datt mér til hugar að hún yrði þýdd, slíka áleit ég þröngsýni íslenskra bókaforlaga þegar kemur að óvenjulegum og verulega furðulegum fantasíum. ...
Úlfurinn rauði | 07.04.2010
Þýðandi Lizu Marklund, Anna Ragnhildur Ingólfsdóttir, lætur ekki standa við orðin tóm. Í vor þegar skáldsaga Marklund, Villibirta, kom út lofaði hún að ný bók væri á næsta leyti og nú er hún komin, rétt í tíma fyrir heimsókn skáldkonunnar sjálfrar. ...
Vetrardrottningin | 07.04.2010
Árni Bergmann hefur nú í áratugi fært Íslendingum frábærar þýðingar sínar á rússneskum skáldskap, allt frá þekktum heimsbókmenntum til minna þekktra og yngri höfunda. ...
Villibirta | 07.04.2010
Hvern hefði grunað að norrænar glæpasögur lumuðu á svona miklu blóði? ...
Eyðibýli | 24.03.2010
Í ljóðinu “Á ystu strönd” lýsir ljóðmælandi því að hingað hafi hann aðeins komið “í ljósum draumi” og “á ystu strönd” hafi staðið “yfirgefið hús / limfagurt lauftré,” hinum megin við fjörðin eru “skóglaus skýjalöndin.” Þessari ferð er heitið “inn í rökkursögu” en þar ber ævintýratréð þann sjaldgæfa ávöxt, “einfalda, dýrmæta kyrrð.” ...


Booksearch

Author:
Book:


Skipta um leturstærð


Tungumál